Fréttir

Ný kjarnastjórn fyrir haustið 2024

Í gær fóru fram kosningar til embætta í nemendafélagi MH, NFMH. Niðurstöðu kosninga í kjarnasjórn eru þannig að nýr forseti er Arnaldur Halldórsson, nýr varaforseti er Benedikt Freyr Þorvaldsson, nýr gjaldkeri er Valgerður Birna Magnúsdóttir og nýr markaðsstjóri er Helga Birna Hauksdóttir. Við óskum þeim til hamingju með kosninguna og hlökkum til að vinna með ykkur næsta vetur.

Viltu bæta árangur þinn á prófum?

Í næstu viku munu námsráðgjafar bjóða upp á námskeið í prófundirbúningi fyrir nemendur í MH. Nemendur geta valið um þrjú námskeið, þriðjudaginn16. apríl, miðvikudaginn 17. apríl eða fimmtudaginn 18. apríl.

Söngvaseiður

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólinn í tónlist kynna með stolti söngleikinn Söngvaseið. Að verkinu kemur fjöldinn allur af nemendum beggja skóla ásamt leikstjóra, aðstoðarleikstjóra/danshöfundi, tónlistarstjóra og kórstjóra. Þessi ástríka sýning er stærsta sýning MH í fleiri áratugi og er fullkomin fyrir alla aldurshópa. Miðasala er inni á Tix.is og geta NEMENDUR MH OG MÍT KEYPT MIÐA Á AFSLÆTTI.

Páskafrí

Páskafríið er hafið og stendur til og með 2. apríl. Skrifstofan verður lokuð og opnar ekki aftur fyrr en kl. 8:30 miðvikudaginn 3. apríl. Við hvetjum ykkur til að njóta páskanna eins og hægt er og safna orku fyrir síðustu vikurnar sem eftir eru af önninni. Við vonumst til að sjá ykkur öll hress eftir páska, gleðilega páska.

Sigur í Gettu betur 2024

Gettu betur lið skólans gladdi okkur mikið í kvöld þegar þau unnu það frækilega afrek að sigra Gettu betur. Liðið hefur lagt á sig mikla vinnu og uppskar glæsilegan sigur í kvöld þegar þau unnu lið MR í skemmtilegri og fjölbreyttri keppni. Til hamingju kæra Gettu betur lið og þjálfarar og varamenn. Atli, Una og Hálfdan þið eruð hetjurnar okkar og við óskum ykkur innilega til hamingju. 

Frönsk myndbandaverðlaun

Í gær, miðvikudaginn 20. mars, var haldin mikil frönskuhátíð í Veröld, húsi Vigdísar. Hátíðin var haldin í tilefni af viku franskrar tungu og 50 ára afmælis Félags frönskukennara. Viðstödd voru frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi í Félagi frönskukennara og sendiherra Frakka á Íslandi. Sýnd voru myndbönd nemenda sem tóku þátt í keppni grunn- og framhaldsskóla um bestu myndböndin á frönsku.

Ólympíukeppni í efnafræði

Úrslitakeppni í 23. Almennu landskeppninni í efnafræði var haldin helgina 2. - 3. mars. Þar áttum við fjóra keppendur og tókst okkur að ná þriðja sæti og komast þar með í Ólympíukeppnina sem verður í Saudi Arabíu í júlí. Til hamingju með þetta.

Sérúrræði í prófum

Alltaf eru einhverjir nemendur sem þurfa sérúrræði í lokaprófum og við tökum tillit til þess. Ýmis úrræði standa ykkur til boða sem eigið greiningar af einhverjum toga, hafið vottorð frá lækni/sálfræðingi eða eruð í reglulegu sambandi við náms- og stafsráðgjafa MH. Nánari upplýsingar eru í tölvupósti frá námsráðgjöfum sem fór út í dag og er einnig hér á heimasíðunni.  Ef einhverjar spurningar vakna, hafið þá samband við náms-og starfsráðgjafa MH.  

Opið hús í MH

Fimmtudaginn 7. mars verður opið opið hús í MH fyrir 10. bekkinga og fjölskyldur sem vilja kynna sér lífið í MH. Kynningar á námsframboðinu í skólanum verða á Miklagarði og Miðgarði og verður hægt að spjalla við nemendur, kennara, námsráðgjafa og stjórnendur um allt sem ykkur dettur í hug.

Valtími 8.mars

Valvika stendur yfir frá og með 29. febrúar til og með 11. mars. Föstudaginn 8. mars kl. 12:40 – 13:00 verða umsjónarkennarar eldri nemenda til viðtals í kennslustofum og hvetjum við nemendur til að leita til þeirra. Þar verður hægt að fá aðstoð við valið og svör við spurningum sem brenna á nemendum. Upplýsingar um valið eru á heimasíðunni undir hnappnum Valvika. Þar er t.d. hægt að skoða lista yfir áfanga í boði, myndræna framsetningu á valáföngum vorannar og lista yfir atriði sem gott er að hafa í huga við valið.