Nemendur í JARÐ2BB05 lögðu upp í langferð um daginn og fóru austanverðan Reykjaneshring.
16. apríl hefst nýtt Discover EU happdrætti.
Með DiscoverEU passanum fá 50 íslensk ungmenni tvisvar á ári frían Interrail passa og flug til Evrópu. Síðustu tvö ár hafa 200 Íslendingar unnið í happdrættinu.
Nemendur MH sem fæddir eru 1. júlí 2005 til 30. júní 2006 geta sótt um í þetta sinn. Það eina sem þarf er að vera á átjánda aldursári, svara nokkrum einföldum spurningum og þá ertu komin(n/ð)í pottinn. Hægt er að sækja um sem hópur og er þá hópurinn dreginn út saman. Evrópusambandið kostar verkefnið en það var sett af stað eftir Covid-19 heimsfaraldurinn. Hugsunin er að íslensk ungmenni fái að kynnast evrópskri menningu – matur, arkitektúr, tónlist og saga.
Passinn gildir í 30 daga. Happdrættið endurtekur sig svo í haust fyrir næsta aldursbil.
Nánari upplýsingar má nálgast hér.
Komast má í pottinn með því að smella hér.