Nemendum stendur ýmiss konar þjónusta til boða í skólanum. Tenglar á nánari upplýsingar eru í dálki hér til hægri.
Kennarar, umsjónarkennarar/lífsleiknikennarar, námstjórar og fagstjórar veita upplýsingar um nám og kennslu í sínu fagi eða deild.
Námsráðgjafar veita nemendum persónulega ráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf og liðsinna nemendum varðandi upplýsingaöflun um námið hér við skólann og nám að loknu stúdentsprófi.
Sálfræðingur: Allir nemendur MH geta leitað til sálfræðings skólans þeim að kostnaðarlausu.
Í námsveri má fá aðstoð við heimanám.
Í Handbók nemenda og forsjáraðila, á heimasíðu skólans, eru leiðbeiningar um aðgang að Innu, upplýsingakerfi framhaldskólanna, þar sem skoða má námsferil, fjarvistir og fleira. Upplýsingar má einnig fá á skrifstofu skólans.