Jóhanna ítölskukennari og námstjóri er ein af þeim sem bíður spennt eftir að aðstoða ykkur ef þið hafið ekki klárað allar töflubreytingar.
Fyrsti kennsludagurinn á nýrri önn byrjar á morgun fimmtudaginn 5. janúar kl. 9:00, með skólasetningu á sal. Rektor mun taka á móti nemendum og segja nokkur orð og eftir það fara allir til kennslustofu skv. stundatöflunni sem er í Innu. Töflubreytingum lýkur í dag í gegnum Innu og ef einhver eiga eftir að fá einhverju breytt þá taka námstjórar á móti ykkur og aðstoða við breytingarnar.