MH aðili að samstarfsyfirlýsingu vegna barna í viðkvæmri stöðu í Reykjavík

MH ásamt framhaldsskólunum í Reykjavík er aðili að samstarfsyfirlýsingu vegna barna í viðkvæmri stöðu í Reykjavík. Yfirlýsingin miðar að því að þróa áfram samvinnu á grundvelli laga og stefnu Reykjavíkurborgar til að tryggja umönnun og vernd barna gegn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, skóla- og frístundaþjónusta og deild barna og fjölskyldna á miðstöðvum Reykjavíkurborgar, Barnaverndarþjónusta Reykjavíkur og framhaldsskólar í Reykjavík hafa ákveðið að vinna saman til að stuðla að farsæld fyrir börn sem eru í viðkvæmri stöðu. Nánari upplýsingar eru hér.