Í gær tóku þrír útskrifaðir nemendur úr Menntaskólanum við Hamrahlíð við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum. Þetta voru þau Embla Sól Óttarsdóttir, Gabríela Albertsdóttir og Tómas Böðvarsson og óskum við þeim innilega til hamingju með styrkinn.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands https://www.hi.is/frettir/rumlega_30_afreksnemar_fa_styrk_til_nams_i_haskola_islands