Staða áfanga:
Áfanginn er valáfangi í kjarna á öllum brautum.
Stutt lýsing á efni áfangans:
Áfanginn inniheldur eingöngu verklegt nám. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist og læri jóga, öndunaræfingar og slökun og að áfanginn sé gagnlegur og geti nýst nemendum við æfingar síðar á lífsleiðinni.
Nokkur lykilhugtök áfangans:
Virkni, liðleiki, styrkur, þol, teygjur, öndun, slökun.
Námsmat:
- Mæting gildir 70%
- Ástundun og kennaraeinkunn 30%.
Nemandi þarf að ná lágmarkseinkunn í báðum námsmatsþáttunum til að standast áfangann. Við mat á ástundun og kennaraeinkunn er tekið tillit til framfara, framkomu, vinnu og virkni í tímum og hvort nemendur hafa lagt sig fram um að bæta form sitt og líkamsástand.