ÞÝSK2EY03 - Meiri þýskur yndislestur
Stutt lýsing á áfanga:
Áfanginn er framhaldsáfangi í yndislestri með undanfara ÞÝSK2DY03. Lesnir eru ýmiss konar textar eins og fréttir, greinar, smásögur, skáldsögur og leikrit. Nemandinn velur lestraefnið út frá sínum forsendum og áhugasviði. Verkefnavinna yfir önnina er bæði munnleg og skrifleg. Nemendur ýmist hitta kennara eftir samkomulagi eða skila verkefnum á Innu.
Námsmat:
Áfanginn er símatsáfangi. Munnleg skil í bland við skrifleg eftir lestur. Kynning í lok annar þar sem nemandinn gerir stuttlega grein fyrir sínu bókavali með samanburði bóka, upplýsingum um höfunda bóka og eigin upplifun.
Einingar: 3