MH-ingar í Sainte-foy-la-Grande

Hópurinn með Sigríði og borgarstjóranum í Bordeaux
Hópurinn með Sigríði og borgarstjóranum í Bordeaux
Fréttir hafa borist frá MH-ingunum sem eru á faraldsfæti í Frakklandi ásamt Sigríði Önnu frönskukennara. Þau taka þátt í Erasmus-verkefni og eru stödd í bænum Sainte-foy-la-Grande. Allt hefur gengið vel, þau hafa fengið góðar móttökur í skólanum og svo sýndi borgarstjórinn þeim ráðhúsið.