Afreksíþróttaval í MH

Frá og með næsta hausti 2024 geta afreksíþróttanemendur sem stunda nám við MH sótt um að íþróttaiðkunin þeirra verði hluti af náminu. Fyrirkomulagið er hugsað fyrir þá sem vilja ná langt í sinni íþróttagrein og skilgreina sig sem afreksíþróttafólk. Íþróttagreinin sem viðkomandi nemandi stundar þarf að vera viðurkennd af Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) og íþróttafélagið aðili að sérsambandi innan ÍSÍ.
Þeir sem eru að sækja um nám við MH þurfa að geta þess á umsókn að þeir sæki um afreksíþróttaval.
Iðkun nemanda í afreksíþróttum getur numið allt að 25 einingum, þ.e. einingar í afreksíþróttum geta komið í stað eininga í líkamsræktaráföngum og frjálsu vali á brautum skólans, þ.e. frá 10-25 einingum.
Nemendur sem sækja um afreksíþróttaval verða boðaðir á fund með fagstjóra í líkamsrækt í upphafi haustannar.