Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn minnast dr. Róberts A. Ottóssonar með dagskrá í
hátíðarsal MH á uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí kl. 20, en þann dag er öld liðin frá
fæðingu Róberts. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hann fæddist í Berlín og stundaði þar tónlistarnám en flýði hingað til lands undan nasismanum árið 1935. Róbert var
meðal merkustu tónlistarmanna landsins og starfaði á ýmsum vettvangi, meðal annars sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
Söngsveitarinnar Fílharmóníu, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og kennari við Háskóla Íslands og
Tónlistarskólann í Reykjavík. Þá var hann fyrsti Íslendingurinn til að ljúka doktorsprófi í tónvísindum með
ritgerð sinni um Þorlákstíðir.
Hamrahlíðarkórarnir syngja undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, sem var nemandi Róberts, útsetningar hans á
íslenskum og erlendum lögum, meðal annars raddsetningar sem hann gerði sérstaklega fyrir Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð. Einnig flytja kórarnir Miskunnarbæn fyrir kór og strengjasveit, sem er eitt fárra frumsamdra tónverka sem Róbert
lét eftir sig. Þá mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur flytja erindi um líf og starf Róberts.