Hjúkrunarfræðingur skólans mælir með því að nemendur kíki á eftirfarandi síðu - sér til fróðleiks!
Hjúkrunarfræðingur skólans veturinn 2022-2023 er Sigríður Elísabet Árnadóttir (Sigga Beta). Nemendur geta ýmist komið við eða pantað tíma með því að senda póst á netfangið: sigridur.elisabet.arnadottir@heilsugaeslan.is
Hvernig getur hjúkrunarfræðingur í framhaldsskóla hjálpað?
- Svarað heilsutengdum spurningum um andlega/líkamlega/félagslega líðan
- Veitt ráðgjöf/viðtöl um heilsutengd málefni
- Veitt ráðleggingar varðandi notkun á heilbrigðiskerfinu
Sigga Beta er við á skólatíma á mánudögum og er staðsett við hliðina á netstjórum á fyrstu hæðinni (stofa merkt Gimlé).