Náms- og starfsráðgjafar MH hvetja nemendur til að mæta vel úthvíldir í próf, að borða hollan og góðan morgunmat á prófdag og mæta tímanlega í próf.
Þegar próf er tekið geta eftirfarandi þættir skipt miklu máli.
- Vertu jákvæður.
- Hlustaðu vel á fyrirmæli og leiðbeiningar kennara.
- Lestu allar leiðbeiningar og spurningar vel.
- Skrifaðu skýrt og greinilega.
- Athugaðu vægi spurninga og svaraðu þeim léttu fyrst.
- Dveldu ekki of lengi við spurningu sem þú getur ekki svarað strax, merktu hana greinilega og geymdu en ekki gleyma henni.
- Einbeittu þér að prófinu sjálfu og notaðu tímann vel.
- Leitaðu aðstoðar hjá kennara ef þú ert í vafa um einhver atriði eða ef þú ert í vandræðum.
- Gættu þess að lenda ekki í tímaþröng.
- Farðu vel yfir prófið.
|
|