Nýr skólastjórnarfulltrúi NFMH

Sinéad Eyja Mara og Guðrún Lilja Ólafsdóttir skiptust á hlutverkum á Miklagarði í dag
Sinéad Eyja Mara og Guðrún Lilja Ólafsdóttir skiptust á hlutverkum á Miklagarði í dag

Nemendur í MH kjósa skólastjórnarfulltrúa einu sinni á ári. Nýr skólastjórnarfulltrúi heitir Guðrún Lilja Ólafsdóttir og er nemandi á öðru ári í MH. Skólastjórnarfulltrúi er fulltrúi nemenda á skólastjórnarfundum og kemur hann hugmyndum nemenda á framfæri. Um leið og við bjóðum Guðrúnu Lilju velkomna til starfa þá þökkum við Eyju fyrir hennar störf.