Fimmtudaginn 24. mars verður opið hús í MH frá kl. 17:00-19:00 fyrir grunnskólanema og forráðamenn þeirra.
Upplýsingar um umnsókn um skólavist, inntökuskilyrði námsbrauta og viðmiðunarreglur MH við inntöku nýnema má finna í
valstikunni hér efst til vinstri.
Meira um opna húsið...
Í opnu húsi Menntaskólans við Hamrahlíð verður námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans kynnt.
Deildarstjórar, kennarar, stjórnendur, náms- og starfsráðgjafar, hjúkrunarfræðingur og forvarnafulltrúi munu sitja fyrir svörum um
námsframboð og annað sem gestum liggur á hjarta varðandi nám við skólann.
Náms-og starfsráðgjafar verða með glærusýningu um brautir skólans og ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem huga á
nám hér í M.H.
Glæsilegt bókasafn skólans verður opið gestum og einnig gefst tækifæri til þess að kíkja í hinar ýmsu kennslustofur.
Nemendur í nemendafélaginu sýna myndband um félagslíf skólans og verða með leiðsögn um skólann sem hefst við stofu 11 kl.
17:30 og 18:30.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð mun bjóða gestum upp á kaffi og með því og syngur nokkur lög kl. 18:00.