Opið hús í MH 6. mars

Þann 6. mars nk. kl. 17-18:30 verður opið hús fyrir fyrir 10. bekkinga og fjölskyldur þeirra sem vilja kynna sér lífið í MH.

Kynningar á námsframboði skólans verða á Miklagarði og Miðgarði og verður hægt að spjalla við nemendur, kennara, námsráðgjafa og stjórnendur um allt sem ykkur dettur í hug. Hver námsgrein mun vera með sinn kynningarbás og sýna sínar allra bestu hliðar t.d. hvaða efni er verið að kenna, hvaða bækur er verið að nota og hvernig verkefni er verið að leysa.

Nemendur skólans bjóða upp á kynnisferðir um skólann og á Matgarði vera ráðin í NFMH með kynningar. Kór MH mun taka lagið og Leikfélag MH verður með opna æfingu í Undirheimum.

Endilega kíkið í heimsókn og við tökum vel á móti ykkur.