Sigur í Gettu betur 2024

Það er stór hópur sem stendur að baki Unu, Atla og Hálfdani.
Það er stór hópur sem stendur að baki Unu, Atla og Hálfdani.

Gettu betur lið skólans gladdi okkur mikið í kvöld þegar þau unnu það frækilega afrek að sigra Gettu betur, í annað sinn í sögu skólans. Liðið hefur lagt á sig mikla vinnu og uppskar glæsilegan sigur í kvöld þegar þau unnu lið MR í skemmtilegri og fjölbreyttri keppni. Til hamingju kæra Gettu betur lið og þjálfarar og varamenn. Atli, Una og Hálfdan þið eruð hetjurnar okkar og við óskum ykkur innilega til hamingju.