14.10.2016
Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á vorönn 2017 verða að velja áfanga fyrir næstu
önn. Valið er bindandi og stendur frá 10.-14 október. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans
undir: upplýsingar um val áfangar og skoða áfanga í boði, Leiðbeiningar
fyrir val til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að
velja í fyrsta skipti undir:Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á
heimasíðu MH. Gott er að hafa próftöflu vorannar 2017 til hliðsjónar við val á áföngum fyrir vorið.
It is high time to select courses for the spring term 2017
Starting October 10th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday October 14th. Áfangaframboð /available courses for the next term are soon to be seen on
our homepage. Guide to course selection in IB. Nemendur
verða skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem
heitir VAL1001. Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara,
birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu.
Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásamt
því að sjá til þess að þið ljúkið að
velja á réttum tíma. Sláið sjálf inn valið ykkar. Þegar þið hafið
slegið inn valið sendið þá
póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að
valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn
valið. Auk þess verða námstjórar og áfangastjóri til
viðtals fyrir alla nemendur um valið.