Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á vorönn 2014 verða að velja áfanga fyrir næstu
önn. Valið er bindandi og stendur frá 7.- 14. október. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, skoða ”Upplýsingar um val” og áfanga í boði til að glöggva sig á framgangi valsins.
Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á
heimasíðu MH.
Yfirlit yfir brautir og námsferilsblöð skv. nýrri námskrá má
nálgast hér.
It
is high time to select courses for the spring term 2014.
Now you can enter the courses of your choice for next term. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.
Nemendur hafa verið skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem heitir VAL1001. Þessi
áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara, birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu. Þessi tiltekni valkennari verður
ykkur innan handar við að velja ásamt því að sjá til þess að þið ljúkið að velja á réttum tíma.
Sláið sjálf inn valið ykkar. Þegar þið hafið slegið inn valið sendið þá póst til valkennarans og skrifið bæði
nafn og kennitölu þannig að valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn valið.
Viðtalstímar verða auglýstir síðar fyrir alla nemendur, sem þess þurfa.