26.10.2016
Ein af þeim góðu gjöfum sem skólanum bárust á 50 ára afmælisdaginn 24. september var málverkið Leynigarðurinn eftir Georg Douglas myndlistarmann og fyrrum jarðfræðikennara MH. Gjöfin er frá fyrsta útskriftarárgangi og núverandi og fyrrverandi starfsmönnum MH. Verkið hangir á Miðgarði við inganginn að Miklagarði og auðvitað er best að njóta þess þar. Fyrir þá sem ekki eiga leið þar framhjá er hér mynd af verkinu. Njótið!
24.10.2016
Á heimasíðu Kvennasögusafnins má meðal annars lesa eftirfarandi um þennan líklega einn stærsta útifund Íslandssögunnar:Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að árið 1975 skyldi sérstaklega helgað málefnum kvenna. Íslensk kvennasamtök tóku höndum saman í upphafi árs 1975 til að skipuleggja aðgerðir ársins og héldu m.a. fjölsótta ráðstefnu í júní þar sem staða og kjör kvenna voru rædd og fjölmargar ályktanir og tillögur samþykktar. Meðal þeirra var tillaga frá Rauðsokkahreyfingunni þess efnis að konur tækju sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna, þann 24. október.Talið er að um 25.000 konur hafi safnast þar saman. Líklega er þetta einn stærsti útifundur Íslandssögunnar. Fjölmargir fundir voru haldnir um allt land sem voru einnig fjölsóttir. Langflestar konur lögðu niður störf þennan dag og atvinnulífið lamaðist.Til hamingju með daginn!
23.10.2016
Fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. október fara nemendur og starfsmenn skólans í haustfrí. Skólinn er lokaður þessa daga. Mánudaginn 24. október hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá. Hafið það gott í haustfríinu!An Autumn break will be taken by students and school staff on Thursday the 20th and Friday the 21st of October. The school will also be closed. Teaching will resume at the usual time on Monday the 24th. Enjoy the Autumn break!
17.10.2016
Nú eiga allir nemendur sem hyggja á áframhaldandi nám í MH á vorönn 2017 að hafa lokið vali. Ef ekki er síðasta tækifærið til hádegis í dag mánudag.
14.10.2016
Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á vorönn 2017 verða að velja áfanga fyrir næstu
önn. Valið er bindandi og stendur frá 10.-14 október. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans
undir: upplýsingar um val áfangar og skoða áfanga í boði, Leiðbeiningar
fyrir val til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að
velja í fyrsta skipti undir:Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á
heimasíðu MH. Gott er að hafa próftöflu vorannar 2017 til hliðsjónar við val á áföngum fyrir vorið.
It is high time to select courses for the spring term 2017
Starting October 10th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday October 14th. Áfangaframboð /available courses for the next term are soon to be seen on
our homepage. Guide to course selection in IB. Nemendur
verða skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem
heitir VAL1001. Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara,
birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu.
Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásamt
því að sjá til þess að þið ljúkið að
velja á réttum tíma. Sláið sjálf inn valið ykkar. Þegar þið hafið
slegið inn valið sendið þá
póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að
valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn
valið. Auk þess verða námstjórar og áfangastjóri til
viðtals fyrir alla nemendur um valið.
05.10.2016
Valið hefst í
byrjun næstu viku, þess vegna er tímabært fyrir nemendur að fara að huga að því.
Hér er hægt að skoða áfangaframboð fyrir vorönn 2017.
Course selection for next term will start next week. Now you can see what courses will be offered for your selection here. Courses offered spring 2017.
04.10.2016
Foreldraráð þakkar ágæta mætingu 4. október og hér má lesa fundargerðina.Frá foreldraráði:
Kæru
foreldrar/forráðamenn. Aðalfundur
foreldraráðs MH verður haldinn þriðjudaginn 4. október kl. 20-21:30 í stofu 11.
Á dagskrá
fundarins verður kynning á hlutverki og markmið foreldraráðs MH. Fríður
náms- og starfsráðgjafi og forvarnarfulltrúi, Andrea skólahjúkrunarfræðingur og
Bóas sálfræðingur munu kynna stoðþjónustu skólans. Boðið verður upp
á köku og kaffi og við fáum tækifæri til þess að spjalla saman. Að lokum mun
Fríður leiða okkur um skólann þar sem við fáum tækifæri til þess að kynnast hvernig
vinnustaður barnanna okkar lítur út að innan.
Við hvetjum alla
foreldra og forráðamenn til að mæta. Fyrir hönd
foreldraráðsins, Helga Viðarsdóttir.
25.09.2016
Sunnudaginn 25. september verður haldið Skákmót í minningu Guðmundar Arnlaugssonar, fyrsta rektors skólans. Mótið er á Miklagarði, hátíðarsal skólans, og er haldið í samvinnu við Skáksamband Íslands. Tefldar verða 11 umferðir með umhugsunartímanum 4+2. Skákmótið hefst kl. 14:00 og er öllum áhugasömum boðið að koma og fylgjast með!
23.09.2016
Kl. 14:00 - 16:00 - Opið hús! Finndu borðið þitt, skoðaðu leynistaðina og hittu alla hina sem líka
voru í MH. Leiðsögn um skólann, sögusýningar, kíkt í kennslustund og
óvæntar uppákomur þegar minnst varir.
Kl. 16:00 - 17:00 - Hátíðadagskrá á Miklagarði.
Ávarp rektors Lárusar H. Bjarnasonar.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur.
Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt rekur byggingasögu skólans í máli og myndum
Wincie Jóhannsdóttir kennari og leiðsögumaður segir frá MH.
Skólinn minn - Eiríkur Tómasson fulltrúi fyrsta árgangs skólans og Katrín Helga Ólafsdóttir nýstúdent ræða saman um skólann sinn.
Sagt verður frá undirbúningi að stofnun nemendasambands Menntaskólans við Hamrahlíð.
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari leikur á flygilinn sem hún vígði á fyrsta starfsári skólans.
Gjöf frá fyrsta árgangi MH og fyrrverandi- og núverandi starfsmönnum skólans afhjúpuð á Miðgarði.
Kl. 17:00 - 18:00 - Kaffi og kökur á Miðgarði.
kl. 20:00 - 22:00 - Tónleikar á Miklagarði þar sem núverandi og fyrrverandi nemendur MH stilla saman
strengi og desibel. Fram koma Ragnheiður Gröndal, Pjetur og
Úlfarnir, Svavar Knútur, Unnur Sara Eldjárn, Karl Olgeirsson, asdfgh, Snorri
Helgason, Högni Egilsson, Páll Óskar og MH-húsbandið.
16.09.2016
Í vikunni 19. - 23. september brjótum við upp
hefðbundið skólastarf. Nemendur og kennarar mæta einu sinni í hvern áfanga
þessa viku og þá í lengdan langan tíma. Í tilefni 50 ára afmælis skólans
verður þetta kerfi aðeins brotið upp og í samráði við kennara gefst nemendum
möguleiki á því að mæta á fyrirlestra í boði fyrrum nemenda skólans. Nemendur staðfesta þátttöku í fyrirlestri/viðburði með því að skila miðum í hólf kennara. Fyrirlestradagskrá - Aftur til framtíðar má nálgast hér og stofur sjást hér á skólaskjá. Hver hópur í áfanga er því annað hvort í:
einum löngum
tíma 2 ½ klst. (byrjar 8:30 eða 13:30) og einum fyrirlestri/viðburði eða
einum löngum
tíma í 3 ½ klst. (byrjar 8:30 eða 12:30).
Tími
MÁN
ÞRI
MIÐ
FIM
FÖS
8:30
til
11:00
Kennari og stofa skv. tíma kl. 8:10
Kennari og stofa skv. tíma kl. 8:10
Kennari og stofa skv. tíma kl. 8:10
Kennari og stofa skv. tíma kl. 8:10
11:15
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
12:00
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
12:45
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar
13:30
til
16:00
Kennari og stofa skv. tíma kl. 14:15
Kennari og stofa skv. tíma kl.14:15
Kennari og stofa skv. tíma kl. 14:15
Kennari og stofa skv. tíma kl. 14:15
KL. 20:00 Leiktu þér enn
eða hvað?
KL. 20:30
Hamraskáldin