13.10.2015
Enn er ekki ljóst hver tók upp á því á dögunum að
teikna typpi sem beint var að andlitsmynd nafngreindrar kennslukonu hér við
skólann á miða sem auðkennir pósthólf viðkomandi. Hér er um kynbundið áreiti að
ræða sem hlýtur að vera okkur öllum áminning um mikilvægi virkrar
jafnréttisáætlunar í skólanum og að við séum sívökul í þessum efnum.
Jafnréttisáætlun MH kveður meðal annars á um að kynbundin mismunun og kynbundið
ofbeldi eða áreiti sé ekki liðið. Sem betur fer hefur margt áunnist og í
skólanum fer fram fræðsla og opinská umræða um þessi mál, meðal annars undir
merkjum feminisma og kynjafræði. Gerandinn í þessu máli á sitthvað ólært en
fréttir vonandi af þessari frétt og sér að sér.
09.10.2015
Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á vorönn 2016 verða að velja áfanga fyrir næstu
önn. Valið er bindandi og stendur frá 6.- 9. október. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans
undir: upplýsingar um val áfangar og skoða áfanga í boði, Leiðbeiningar
fyrir val til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að
velja í fyrsta skipti undir:Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á
heimasíðu MH.
Athugið að fara þarf inn í eldri hluta Innu til þess að velja.
It is high time to select courses for the spring term 2016
Starting october the 6th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday March 9th. Áfangaframboð /available courses for the next term are now to be seen on
our homepage. Guide to course selection in IB.
08.10.2015
Aðalfundur foreldraráðs MH verður haldinn fimmtudaginn 8. október kl. 20-21:30 í stofu 11. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og kosning stjórnar. Fræðsluerindi er frá Margréti Sigmarsdóttur, doktor í sálfræði en hún hefur um árabil rannsakað foreldrafærni, erindi hennar heitir:
Aðlögunarvandi ungmenna - Verndandi þættir, hlutverk og áhrif foreldra.
Allir foreldrar nemenda í MH er velkomnir!
08.10.2015
Á tímabilinu 28. september til 2. október fá nemendur á fyrsta ári, fæddir 1999 og síðar, miðannarmat frá öllum kennurum
sínum. Miðannarmatið er byggt á liðlega 6 vikna kynnum. Kennarar eru því að meta ástundun nemanda áður en til lokaprófa kemur og
leggja mat á hvernig nemandinn hefur unnið í hverjum áfanga hingað til. Umsögn er gefin í eftirfarandi bókstöfum:G = góð(ur), V =
viðunandi og O = ófullnægjandi og þarf að bæta. Miðannarmatið birtist í Innu upp úr 6. október.
At this time, September 28th to October 2nd well before the exams, our
teachers attempt to evaluate how well our youngest students, born in
1999 or later, are working. We wish to stress
the fact that teachers are not giving a grade of the kind
students traditionally receive at the end of term after sitting final
exams. The intention is rather to convey the teachers
impressions of how students have been working over the past 6 weeks.
The grades are : G = good (góður), V = acceptable (viðunandi) = og O = unacceptable and needs
improving (ófullnægjandi og þarf að bæta). The midterm evaluation will be accessible in Inna from October 6th.
24.09.2015
Ágætu foreldrar/forráðamenn
Stjórnendur MH bjóða
ykkur velkomin til kynningarfundar í skólanum 24. sept. kl. 20 - 21:30 og óska þess jafnframt að eiga
gott samstarf við ykkur um menntun unglinganna sem nú eru að hefja hér skólagöngu.
25.09.2015
Í þessari viku
brjótum við upp hefðbundið skólastarf. Nemendur og kennarar mæta einu sinni í
hvern áfanga þessa viku og þá í lengdan langan tíma.
Tvöfaldir tímar
lengjast, morguntímar teygjast til hádegis (8:30-12:00) og síðdegistímar frá
hádegi til fjögur (12:30-16:00) og mæta nemendur og kennarar í þá stofu sem skráð
er í stundatöflu í langa tímanum.
Viðvera er
skráð í lengdu tvöföldu tímunum og gildir fyrir alla tíma vikunnar.
LÍKAMSRÆKT:
Boðið verður upp á aukatíma/uppbótartíma í líkamsrækt. Hefðbundin líkamsrækt fellur niður. Nemendur mæta þegar þeim hentar.
Ganga vegna aukatíma mánud. 21 sept. Kl: 8:30 12:00. Munið góða skó, drykk og nasl.
Opið hús í íþróttahúsi MH
þriðjudag til fimmtudags frá kl: 10:00 til 14:00, og föstudag frá kl: 10:00 til
12:00.
Fyrsti tvöfaldi
tími vikunnar hefst kl. 12:30 mánudaginn 21. september. Þessi tafla lýsir fyrirkomulaginu.
Tími
mánudagur
þriðjudagur
miðvikudagur
fimmtudagur
föstudagur
8:30 til
Kennari og stofa
Kennari og stofa
Kennari og stofa
Kennari og stofa
12:00
skv. tíma kl. 8:10
skv. tíma kl. 8:10
skv. tíma kl. 8:10
skv. tíma kl. 8:10
matur
12:30 til
Kennari og stofa
Kennari og stofa
Kennari og stofa
Kennari og stofa
16:00
skv. tíma kl. 14:15
skv. tíma kl. 14:15
skv. tíma kl. 14:15
skv. tíma kl. 14:15
18.09.2015
Þessa dagana er haldin
hinsegin vika í MH. Af því tilefni verður fræðslukvöld í Norðurkjallara fimmtudaginn 17. september klukkan 19:30. Foreldrar og forráðamenn eru
sérstaklega hvattir til að mæta.
18.09.2015
Hjólum í skólann árið 2015 stendur frá 9. 22. september. Skráning á hjolumiskolann.is og velja svo MH.
Árið 2014 vann Menntaskólinn við Hamrahlíð gullverðlaun í flokki skóla með yfir 1000 nemendur og starfsmenn. Gerum jafn vel núna MH-ingar!
17.09.2015
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 17. september kl. 17:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftirtöldum tungumálum: albönsku, arabísku, bosnísku, búlgörsku, filipísku (tagalog), flæmsku, hollensku, japönsku, ítölsku, kínversku, króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, taílensku, tékknesku, ungversku og víetnömsku.
Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis 17. september. Nauðsynlegt er að við greiðslu komi fram nafn og kennitala próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu.
Tengill í (link to) rafræna skráningu í stöðupróf - online registration -
Placement tests (for Secondary School credit) in the following languages will be held on September 17th at 5 pm. Placement tests in Albanian, Arabian, Bosnian, Czech, Chinese, Croatian, Dutch, Filipino (tagalog), Flemish, Hungarian, Italian, Japanese, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Serbian, Thai and Vietnamese.
The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 26 account no. 106, id. 460269-3509 before noon on September 17th. Please provide the name and identification number of the examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam. For more information call the school office tel. 595-5200. Everyone sitting the test must show an ID with a picture.
04.09.2015
Allir sem hyggja á útskrift frá MH í desember verða að koma í viðtal hjá áfangastjóra eða konrektor fyrir lok þessarar viku.