10.03.2015
Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2015 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi
og stendur frá 3.- 10. mars. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans undir: upplýsingar um val – áfangar og skoða ”áfanga í boði”,
”Leiðbeiningar fyrir val” til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á
heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að velja í fyrsta skipti undir: Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Leiðbeiningar um
innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á heimasíðu MH.
It is high time to select courses for the fall term 2015
Starting today March 3rd you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Monday March 10th. Áfangaframboð /available courses for the next term are now to be seen on our homepage. Guide to course selection in
IB.
09.03.2015
Er þú ekki örugglega búin(n) að velja fyrir haustönn 2015? Valinu lýkur í dag 10. mars.
09.03.2015
Fjórar deildir Háskóla Íslands munu nýta aðgangspróf fyrir háskólastig eða A-próf til að taka inn nemendur haustið 2015.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í A-próf sem munu fara fram í mars og júní. Allar nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni http://www.hi.is/a_prof. Þar eru einnig sýnishorn af prófspurningum. Prófin eru haldin tvisvar á
ári í mars og Júní.
Útskriftarnemendur athugið að skráningu lýkur 13. mars vegna A-prófa Hjúkrunarfæðideildar og Lagadeildar
sem haldin verða 21. mars.
26.02.2015
Foreldraráð Menntaskólans við Hamrahlíð stendur fyrir kynningu á niðurstöðum könnunar um hagi, líðan og vímuefnaneyslu
nemenda skólans þriðjudagskvöldið 3. mars kl. 20. Rannsókn og greining lagði könnunina fyrir árið 2013 en könnunin hefur reglulega verið
lögð fyrir framhaldsskólanema á Íslandi frá árinu 1992 og gefur því ágætis mynd af þróun framangreindra
þátta síðustu 20 árin. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur frá Rannsókn og greiningu mun koma og greina
frá niðurstöðum fyrir Menntaskólann við Hamrahlíð og bera saman við heildina og aðra framhaldsskóla.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að mæta og hlýða á áhugavert erindi.
Fundurinn er þriðjudagskvöldið 3. mars kl. 20:00 í stofu 11.
24.02.2015
Alma Ágústsdóttir, nemandi MH, sigraði sjöttu ræðukeppni the English Speaking Union (ESU) og Félags enskukennara (ATEI) sem haldin var hér
á landi laugardaginn 21. febrúar. Þema keppninnar var: To be Ignorant of the Past is to Remain a Child.Alma hefur nú unnið sér keppnisrétt
í undanúrslitum sem fram fara í Lundúnum mánudaginn 11. maí. Þar á hún að flytja ræðu út frá
þemanu: Culture is not a Luxury but a Necessity. Lokakeppnin verður föstudaginn 15. maí 2015.
Alma Ágústsdóttir is to be congratulated on her victory in the 6th National Public Speaking Competition held each year jointly by the English Speking Union in Iceland (ESU)
and the Association of Teachers of English in Iceland (ATEI). The theme was " To be Ignorant of the Past is to Remain a Child". Alma goes to London in May where she competes in an
International Competition on the theme "Culture is not a Luxury but a Necessity". There she will stay 5-6 days enjoying the company of other competitors from over 50
countries, some of whom come to London having been selected out of thousands of contestants.
17.02.2015
Hér má finna dagskrá lagningardaga þar sem allir geta
fundið eitthvað áhugavert.
17.02.2015
Einn af viðburðum lagningardaga er skólaþing þ.s. nemendur og kennarar ræða ýmislegt er viðkemur starfi skólans. Skólaþingið er
haldið miðvikudaginn 18. febrúar frá 10 - 12 á Miklagarði.
Umræðuefnin í ár verða: 1) sorpflokkun, 2) nemendafélagið, 3) forvarnir, 4) borðamenning og uppröðun borða, 5) Sómalía
matsala nemenda, 6) grunnþættir menntunar, 7) framhaldskólaeiningarnar nýju, 8) farsímanotkun í tímum, 9) tímarammi stundatöflu og 10)
inntak og eðli lagningardaga. Allir skiptast á skoðunum og skólinn verður betri!
18.02.2015
Lagningardagar verða hér í MH 18., 19. og 20. febrúar. Þá fellur niður hefðbundin kennsla og ýmsir skemmtilegir viðburðir
verða, s.s. fyrirlestrar, námskeið og skapandi starf.
Mætingarskylda er á þessum dögum. Búinn hefur verið til nýr áfangi, LAGN1AF00, og hann settur í námsferil og töflu hjá
öllum nemendum dagskóla. Áfanginn birtist sem 5 kennslustundir í stundatöflu og honum fylgja því 5 mætingarstig, eða ef svo ber undir 5
fjarvistarstig. Þessi áfangi birtist aðeins í töflu á Lagningardögum, en verður þó áfram í ferli nemenda og lýkur
með einkunn S (staðið) eða F (fallið). Til þess að fá 5 mætingarstig og S þarf hver nemandi að skila danskorti með 20 punktum, eða fullu
húsi stiga, og hér gildir reglan allt eða ekkert. Eins og undanfarin ár skila nemendur danskortum á skrifstofuna þar sem gengið verður frá
mætingaskráningu. Nemendur hafa frest til miðvikudagsins 25. febrúar til þess að skila inn danskortinu.
Open days on February 18th, 19th and 20th with lectures, workshops, music, dance, drawing, drama and more. Attendance is mandatory during these days.
A new course LAGN1AF00 will be added to every student’s curriculum and timetable. This course has five lessons that only appear during the 3 days of Lagningardagar. They carry with them 5
attendance points that the students have to fulfill by attending the equivalent of 20 Lagningardagar points. This means that all students start with 20 attendance points that they have to make up for
during Lagningardagar. This they do by attending some of the events and getting the Lagningardagar-card stamped. Here the rule is all or nothing. You have to finish 20 Lagningardagar points to get
the 5 attendance points in Inna. Then the card is returned to the office by Wednesday February 25th. A grade of S (=pass) or F (=fail) will be given at the end of the term.
06.02.2015
Bókin Íslenska fjögur. – Kennslubók í íslensku fyrir framhaldsskóla og
höfundar hennar þau Ragnhildur Richter, Sigríður Stefánsdóttir og Steingrímur
Þórðarson íslenskukennarar hér í MH hafa verið tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis í ár. Í umsögn
dómnefndar segir:
Vel unnin og skýr kennslubók þar sem eftirtektarverður metnaður í aðlaðandi
framsetningu auðveldar nemendum og kennurum notkun hennar.
Frétt á mbl.is
Hér má sjá okkar fólk meðal annarra tilnefndra á mynd af mbl.is
03.02.2015
Í þetta sinn er safnað fyrir Fjólu, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Félagar í Fjólu eru
mjög háðir aðstoð við öll ferðalög sem og táknmálstúlkun, slíkt kostar talsverða fjármuni og eru dæmi þess
að félagar hafi ekki haft tækifæri til samfélagslegrar þátttöku sökum fjárskorts. Hér viljum við leggja lið. Sjá
nánar á http://www.ruv.is/frett/blindir-og-heyrnarlausir-i-einangrun
Í góðgerðavikunni verða ýmsir viðburðir, bæði innan skólans sem utan, þar má nefna dansíóký þar sem
nemendur og kennarar koma saman og dansa og styrkja um leið gott málefni með þáttöku sinni. Einnig verða jazztónleikar, hádegistónleikar,
ýmiss áheit, lukkuhjól, seld gómsæt súpa ásamt heitu kakói og margt margt fleira.