26.02.2014
Í gær héldu nemendur hátíðlegan Ellýardag í tilefni af 10 ára starfsafmæli Ellýar í Sómalíu, matsölu
nemenda. Karen forseti NFMH færði Ellý bók með heillaóskum, blóm, verðlaunabikar og boðsmiða til Parísar fyrir hana og eiginmann hennar.
Gjafirnar eru afrakstur söfnunar nemendastjórnar og starfsfólks Sómalíu meðal nemenda og starfsmanna. Ellý hefur reynst nemendum og okkur öllum vel
síðastliðin 10 ár og vonandi njótum við starfskrafta hennar sem lengst. Til hamingju með daginn!
24.02.2014
MH tekur þátt í Lífshlaupinu. Skólinn er eitt lið nemenda og starfsfólks.
Til að fá skráðan 1 dag þarf að stunda miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur samtals yfir daginn. Tímanum
má skipta upp í nokkrar styttri einingar yfir daginn s.s. nokkrar 10 eða 15 mínútna lotur í senn. Allir dagar telja með (frídagar og virkir dagar).
Allir taka þátt og skrá hreyfingu sína með liði MH á www.lifshlaupid.is
20.02.2014
Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að flauta til þjálfunarbúða á laugardaginn kemur 22. febrúar kl. 11
fyrir þá sem vilja kynnast þeim verkefnum sem farið verður í sjálfri Forritunarkeppni framhaldsskólanna. Byrjendur jafnt sem lengra komnir eru hvattir til að mæta og fá allri
þjálfun við sitt hæfi. Mikilvægt er að þátttakendur komi með eigin tölvur með sér, aðgangur ókeypis.
Hægt er að skrá sig með því að senda póst á scs_office@ru.is. Sjá einnig á
www.facebook.com/ForritunarkeppniFramhaldsskolanna.
19.02.2014
Smellið hér til að sjá dagskrá á
Lagningardögum!
17.02.2014
Mætingarskylda á Lagningardögum. Búinn hefur verið til nýr áfangi, LAGN1AF00, og hann settur í
námsferil og töflu hjá öllum nemendum dagskóla. Áfanginn birtist sem 5 kennslustundir í stundatöflu og honum fylgja því 5
mætingarstig, eða ef svo ber undir 5 fjarvistarstig. Til þess að fá 5 mætingarstig og S þarf hver nemandi að skila danskorti
með 20 punktum, eða fullu húsi stiga, og hér gildir reglan allt eða ekkert. Eins og undanfarin ár skila nemendur danskortum á skrifstofuna þar sem
gengið verður frá mætingaskráningu. Nemendur hafa frest til miðvikudagsins 26. febrúar til þess að skila inn danskortinu.
A new course LAGN1AF00 has been added to every student’s curriculum and timetable. This course has five lessons that only appear during the 3 days of
Lagningardagar. They carry with them 5 attendance points that the students have to fulfill by attending the equivalent of 20 Lagningardagar points. This means that all students start with 20 attendance points that they have to make up for during Lagningardagar. This they do by attending some
of the events and getting the Lagningardagar-card stamped. Here the rule is all or nothing. You have to finish 20 Lagningardagar points to get the 5
attendance points in Inna. Then the card is returned to the office by Wednesday February 26th.
13.02.2014
Í gærkvöldi, miðvikudaginn 11. febrúar, var áhugavert viðtal við Ásdísi þórólfsdóttur
spænskukennara og Sigurkarl Stefánsson líffræðikennara MH í Íslandi í dag. Gefin er góð innsýn í starf kennarans.
Upplýsandi og skemmtilegt viðtal sérstaklega nú á þessum umbrotatímum. Hér er hægt að nálgast viðtalið.
12.02.2014
Snilldarlausnir Marel hófust síðastliðin föstudag og er kynningarmyndband keppninnar komið í loftið sjá hér. Hugmyndasamkeppnin gengur út á það að framhaldsskólanemar finna einföldum hlut
aukið virði með nýju notagildi. Þetta árið er flaska hlutur ársins. Notagildið eiga nemendur að taka upp á myndband og senda
í keppnina.
Allar frekari upplýsingar má finna á http://www.snilldarlausnir.is/ eða hjá Stefan Christian Otte
efnafræðikennara.
Skilafrestur er mánudaginn 3.mars. Vegleg verðlaun eru í boði.
07.02.2014
Loksins eru hafnar framkvæmdir hér vestan við húsið þar sem reist verður hjólaskýli fyrir 60 hjól duglegra Hamrahlíðinga.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki síðar í þessum mánuði.
03.02.2014
Óformleg könnun hér á heimasíðunni gefur til kynna að margir hafi dottið í hálkunni undanfarið. Munum því að
það er aldrei of varlega farið þegar veður er svona umhleypingasamt.