01.03.2011
Búið er að opna fyrir val fyrir haustönn 2011. Vali á að vera lokið þann 14. mars. Áfangar
með lýsingu á framgangi valsins og áfangaframboð hefur nú þegar verið sett
á heimasíðu MH.
It is high time to select courses for the autum term 2011.
Now you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Monday March 14th. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.
21.02.2011
Laugardaginn 19. febrúar fór fram á ensku ræðukeppni ungmenna á aldrinum 16-20 ára. Að keppninni stóðu ESU, The English-Speaking Union
of Iceland, í samvinnu við sendiráð enskumælandi landa á Íslandi og FEKÍ, félag enskukennara á Íslandi.
Keppnin var mjög jöfn en að endingu urðu dómarar sammála um að veita sameiginleg fyrstu og önnur verðlaun sem féllu í skaut Hildar
Hjörvar MH og Sigríðar Maríu Egilsdóttur VÍ. Hildur og Sigríður fara til Lundúna í maí og keppa þar við jafnaldra
sína víðsvegar að úr heiminum að lokinni nokkurra daga þjálfunar og menningardvöl.
21.02.2011
Nemendur frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og Menntaskólanum í Reykjavík báru sigur úr býtum í HR
áskoruninni sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í tengslum við Háskóladaginn.
Á heimasíðu HR segir m.a. um keppnina „Áskorunin í ár fólst í því að hanna og smíða gosþjón sem
notar a.m.k. 20 aðgerðir (með svokölluðum dómínóáhrifum) til þess að hella gosi úr flösku á tilsettum tíma.
Keppnin reynir verulega á tæknilegt innsæi, hugmyndaflug og úrræðasemi“
24.01.2011
Opið hús fyrir 10-bekkinga og
aðstandendur þeirra verður í Menntaskólanum við Hamrahlíð fimmtudaginn 24. mars frá kl. 17-19. Nánari upplýsinga að vænta
þegar nær dregur.
05.01.2011
Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um fyrir kl. 15:00. Breyttar töflur birtast í Innu. If necessary apply
for changes to your timetable before 3 o´clock today.
29.12.2010
Innritun í öldungadeildina/kvöldskólann fyrir vorönn 2011 er hafin. Smellið hér til að innrita ykkur.
22.12.2010
Skrifstofa skólans verður opin 22., 28. og 29. desember frá 10:00 til 14:00.
Á nýju ári verður skrifstofan opnuð kl. 8:30 þann 4. janúar og kennsla hefst kl. 8:45 þann 5. janúar.
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár!
21.12.2010
Brautskráning stúdenta verður þriðjudaginn 21. desember kl. 16:00. Gera má ráð fyrir að athöfnin taki tvær klst. og að henni
lokinni er sameiginleg myndataka stúdenta.
The graduation ceremony will be held on Tuesday the 21st at 4 o´clock. It will last for approximately two hours and at the end
of it a group picture will be taken of all the graduates.
20.12.2010
Samkvæmt netkönnun hér á síðunni reyndist Kertasníkir vinsælastur jólasveina en fast á hæla honum fylgdi Stúfur.