30.01.2019
Í dag afhenti foreldraráð MH nemendafélaginu borðtennisborð. Borðið mun án efa hafa mikið aðdráttarafl og hvetja nemendur til leiks. Hægt verður að fá lánaða borðtennisspaða og kúlur á bókasafninu. Takk fyrir þessa skemmtilegu gjöf !
30.01.2019
Athygli er vakin á jöfnunarstyrki fyrir nemendur sem sækja nám fjarri lögheimili og fjölskyldu.
Hægt er að sækja um styrkinn með rafrænum skilríkjum inn á www.lin.is og island.is
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi.
24.01.2019
Föstudaginn 25. janúar kl. 11:00 er nemendum og starfsfólki skólans boðið í Hörpu á Sinfóníska dansa úr West Side Story í boði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. MH-ingar munu fjölmenna enda frábær skemmtun í boði.
Lagt verður af stað frá skólanum kl. 10:35 og verða rútur staðsettar á bílaplani vestanmegin við skólann. Nemendur mæta í tíma þar sem verður lesið upp og í kjölfarið farið í rúturnar. Áætluð heimkoma er um 12:15.
17.01.2019
Lið MH keppti á móti liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja sl. þriðjudag. Leikar fóru þannig að MH sigraði með 28 stigum gegn 6 stigum Suðurnesjamanna. Glæsilegur árangur en næsta viðureign fer fram í febrúar í sjónvarpinu og er andstæðingurinn MR líkt og í fyrra.
Við óskum liðinu til hamingju með sigurinn en það skipa Gunnar Ólafsson, Jenný María Jóhannsdóttir og Tómas Ingi Hrólfsson.
15.01.2019
Í byrjun þessarar viku fjölguðum við ruslatunnum svo hægt væri að flokka m.a. plast og lífrænan úrgang. Búið er að setja tunnur fyrir plastúrgang inn á Matgarð, inn á Miðgarð og í Norðurkjallara. Tunnur fyrir lífrænan úrgang má finna inni á Matgarði og Miðgarði. Einnig verður eftir sem áður hægt að flokka pappír, dósir/plastflöskur og almennt rusl. Athugið að hreinsa matarleyfar eins vel og þið getið úr plastílátum áður en þau eru sett í þar til gerða tunnu.
Verum dugleg að flokka þannig að skólinn sé til fyrirmyndar í umhverfismálum.
15.01.2019
Melkorka Gunborg Briansdóttir sigraði í Smásagnakeppni félags enskukennara, annað árið í röð. Melkorka útskrifaðist frá MH núna um jólin. Við óskum henni til hamingju með árangurinn og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.
11.01.2019
Þann 9. janúar keppti lið MH í MORFÍS á móti Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Eftir hörkukeppni sigraði lið MH með 108 stiga mun og er komið í aðra umferð. Lið MH skipa Ari Hallgrímsson, Elínborg Una Einarsdóttir, Grettir Valsson og Inga Steinunn Henningsdóttir. Þjálfarar eru Tumi Björnsson og Bjartmar Magnússon. Ari Hallgrímsson var jafnframt valinn ræðumaður kvöldsins.
Við óskum liðinu til hamingju með sigurinn.
10.01.2019
Lið MH keppti í vikunni í fyrstu umferð Gettu betur og var andstæðingurinn Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Leikar fóru þannig að lið MH sigraði með 26 stigum gegn 9 stigum Mosfellinga. Lið MH skipa í ár þau Gunnar Ólafsson, Jenný María Jóhannsdóttir og Tómas Ingi Hrólfsson. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn. MH keppir næst 15. janúar á móti Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst viðureignin kl. 20:30 og er útvarpað á RÁS2.
02.01.2019
Skrifstofa skólans opnar 3. janúar kl. 10:00.
Kennsla á vorönn 2019 hefst mánudagurinn 7. janúar samkvæmt stundatöflu. Kynningarfundur fyrir nýja nemendur verður haldinn föstudaginn 4. janúar kl. 13:00 í stofu 11 og er afar mikilvægt að nýir nemendur mæti á þann fund. Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar í INNU fimmtudaginn 3. jan eftir kl. 16:00. Nemendur athugið að til þess að sjá heila viku af stundatöflu þarf að skoða vikuna 7.-13. janúar.
The school´s main office will open on 3rd of January at 10:00AM
First day of teaching on new year is 7th of January. An orientation for new students will be 4th of January at 1PM in classroom 11. It is very important for new students to attend the meeting. Student timetables will be accessable in INNA 3rd of January after 4PM.
22.12.2018
Brautskráðir voru 130 nemendur frá skólanum af sex námsbrautum. Brautskráðir voru 25 af félagsfræðabraut, 1 af listdansbraut, 8 af málabraut, 25 af náttúrufræðibraut, 70 af opinni braut og 1 af tónlistarbraut. Stúlkur eru í drjúgum meirihluta, þ.e. eru 60% móti 40% pilta.
Sex nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans, Melkorka Gunborg Briansdóttir, með einstakan árangur, þ.e. 9,91 í meðaleinkunn sem er önnur til fjórða hæsta einkunn í sögu skólans en hún lauk jafnframt 281 einingu. Melkorka hlaut auk þess viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í félagsgreinum, sögu og þýsku. Semidúx var Hugi Kjartansson sem útskrifast af opinni braut með áherslu á stærðfræði og íslensku með 9,30 í meðaleinkunn.
Nemendur með ágætiseinkunn voru:
Aróra Erika Luciano og hlaut viðurkenningur fyrir ágætan námsárangur í frönsku.
Kjartan Skarphéðinsson og hlaut hann jafnframt raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík og viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í jarðfræði.
Steinunn Björg Hauksdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ágætiseinkunn á stúdentsprófi.
Tristan Ferrua Edwardsson og hlaut hann jafnframt viðurkenningu frá Stærðfræðingafélagi Íslands fyrir ágætan námsárangur í stærðfræði.
Aðrir nemendur sem fengu viðurkenningu voru:
Agata Jóhannsdóttir; jarðfræði
Anna Soffía Grönholm; líffræði
Davíð Örn Auðunsson; efnafræði
Snorri Freyr Vignisson; danska
Sóley Dúfa Leósdóttir; myndlist
Valgerður Birna Jónsdóttir; íslenska
Þorsteinn Sturla Gunnarsson; enska
Ávarp fyrir hönd nýstúdenta fluttu Kári Arnarsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir. Við athöfnina frumfluttu nýstúdentar úr Kór Menntaskólans við Hamrahlíð tónverkið „Kulda“ eftir Iðunni Einarsdóttur sem útskrifaðist frá MH sl. vor.