04.01.2020
Nýnemar vorannar 2020 eru boðnir velkomnir í skólann 6.janúar kl. 13:00 í stofu 11. Þar verður farið yfir helstu atriði til að fyrsti skóladagurinn gangi sem best fyrir sig. Ef nýnemar vorannar telja sig þurfa töflubreytingu þá verða námstjórar við eftir kynningarfundinn og tilbúnir að aðstoða við breytingarnar. Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 7. janúar kl. 9:10. Gleðilega önn og velkomin í MH.
04.01.2020
Gerðar hafa verið breytingar á skólasóknarreglum og viljum við að þið kynnið ykkur þær sem fyrst hér á heimasíðunni. Aðalbreytingin er að eftir fyrsta dag veikinda verða fjarvistir frádregnar og einnig verður meiri eftirfylgni með lágmarksmætingu í einstaka áfanga. Hér má sjá nánar um breyttar reglur.
03.01.2020
Stundatöflur vorannar 2020 (see English below)
Stundatöflur nemenda eru núna sýnilegar í Innu. Nýir greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga og opnast stundatöflur í kjölfarið. Nýnemar vorannar geta sótt um töflubreytingar hjá námstjórum eftir kynningarfundinn 6. janúar. Aðrir nemendur sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst í gegnum Innu - leiðbeiningar um það eru í Innu undir Aðstoð . Breyttar töflur birtast í Innu eftir því sem þær vinnast. Ef töflubreytingu er hafnað þá er það oftast vegna þess að hópar eru fullir. Ekki er hægt að sækja um P-áfanga í töflubreytingum. Þeir sem hafa sótt um P-áfanga ættu að fá þá inn í byrjun næstu viku.
Hægt er að senda inn beiðni um töflubreytingar til og með sunnudeginum 5. janúar. Eftir það þarf að fara til námstjóra eða áfangastjóra til að breyta töflum. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. janúar kl. 9:10. Námsgagnalisti/bókalisti er aðgengilegur í Innu.
Timetables for Spring 2020
Students who have paid their tuition fees can check their timetable on Inna. If necessary apply for changes to your class timetable as soon as possible.
30.12.2019
Á haustönn 2019 voru 506 nemendur með 10 í skólasóknareinkunn eða 46% nemenda. Til að fá 10 í skólasóknareinkunn þurfa nemendur að vera með a.m.k. 95% skólasókn. Þessar einkunnir staðfesta enn og aftur hversu einbeittir nemendur eru að mæta vel og sinna náminu af miklum áhuga. Alls voru 40 nemendur með óaðfinnanlega skólasókn, þ.e. mættu 100% í alla tíma yfir önnina.
Við óskum nemendum til hamingju með mjög góða skólasókn á haustönn.
30.12.2019
Innan er lokuð hjá þeim nemendum sem ekki hafa greitt skólagjöld. Upplýsingar frá bönkum berast ekki til MH (eða Innu) fyrr en á næsta virka degi eftir greiðslu. Gera má ráð fyrir að stundatöflur þeirra sem greitt hafa skólagjöldin verði aðgengilegar seinnipart 3. janúar 2020.
23.12.2019
Skrifstofan verður lokuð mánudaginn 30. desember til og með 2.janúar 2020. Þann 3.janúar verður skrifstofan opin frá 10:00 - 15:00. Mánudaginn 6. janúar koma nýnemar vorannar í skólann kl. 13:00 og kennsla hefst þriðjudaginn 7. janúar kl. 9:10 skv. stundaskrá. Við þökkum fyrir árið sem er að líða og bíðum spennt eftir árinu 2020.
21.12.2019
Brautskráðir voru 98 stúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af fimm námsbrautum, þar af tveir stúdentar sem luku námi af tveimur brautum. Að þessu sinni útskrifuðust flestir af opinni braut eða 43 nemendur, 33 af náttúrufræðibraut, 13 af félagsfræðabraut, 8 af málabraut og 3 af listdansbraut.
Þrír nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Sóley Halldórsdóttir nemandi á náttúrufræðibraut með 9,37 í meðaleinkunn. Sóley hlaut auk þess viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í líffræði.
Semidúx var Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir sem útskrifaðist af málabraut með 9,26 í meðaleinkunn en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í þýsku.
21.12.2019
Þann 27. desember nk. er skrifstofa skólans opin 10:00-14:00. Skrifstofan verður opnuð 3. janúar á nýju ári kl. 10:00.
Gleðilega hátíð og njótið jólanna með fjölskyldu og vinum.
20.12.2019
Brautskráning stúdenta verður laugardaginn 21. desember. Athöfnin fer fram á Miklagarði, hátíðarsal skólans, og hefst kl. 13:00.
Graduation ceremony will be held on Saturday December 21th. The ceremony takes place in Mikligarður, the school auditorium starting at 1 pm.
19.12.2019
Steingrímur Þórðarson íslenskukennari við MH lætur nú af störfum eftir að hafa starfað við skólann í 40 ár. Steingrímur hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum við skólann og verið áfangastjóri, settur konrektor og settur rektor.
Steingrímur var kvaddur á staðfestingardag og færð gjöf frá skólanum á þessum merku tímamótum en fátítt er að menn nái 40 árum á einum og sama vinnustaðnum.
Við þökkum Steingrími fyrir vel unnin störf og farsælt og gjöfult samstarf.