16.01.2013
Tveir af fjórum ungum einleikurum sem stigu á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gærkveldi eru eða voru nemendur MH.
Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari er núverandi nemandi skólans og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari
útskrifaðist frá okkur um jólin. Þær, ásamt Einari Bjarti Egilssyni og Unnsteini Árnasyni voru vinningshafar í keppni ungra einleikara.
Hér er tengill í frétt á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Til hamingju!
10.01.2013
Advania hefur kynnt nýjar reglur sem gilda um lykilorð í Innu. Þær eru þannig að alltaf er útbúið
nýtt tímabundið lykilorð þegar notandi velur að sækja lykilorð. Þetta tímabundna lykilorð hefur 15 mín. gildistíma og þarf notandi að skrá sig inn innan þess tíma og velja sér nýtt lykilorð sem er
a.m.k. 8 stafir á lengd og inniheldur bæði bókstafi og tölustafi. Ef tímabundnu lykilorði er ekki breytt innan gildistíma þarf að sækja
nýtt lykilorð á ný.
Óbreytt er að þegar skipt er um lykilorð í Innu þá verður Námsnetið/Myschool komið með nýja
lykilorðið daginn eftir.
05.01.2013
Kennsla hefst mánudaginn 7. janúar samkvæmt stundaskrá dagskóla og fyrri lotu öldungadeildar/kvöldskóla.
28.12.2012
Nú geta þeir nemendur sem greitt hafa skólagjöldin skoðað stundatöflu sína í Innu. Nýir
greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga. Students who have paid their tuition fee can now check their timetable on Inna.
Nýnemar geta nálgast nánari upplýsingar og leiðbeiningar hér.
Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst. Breyttar töflur birtast í Innu um
helgina eða eftir því sem þær vinnast. Fyrstir koma fyrstir fá! Ef tafla á að vera tilbúin fyrir
fyrsta kennsludag þarf breytingabeiðni að berast eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 4. janúar. If necessary apply for changes to your timetable as soon as
possible and before noon on January 4th.
Smellið hér til þess að fá eyðublað og sendið það síðan í viðhengi
á netfangið tafla@mh.is
Click on the line above, fill it out and send it as an attachment to tafla@mh.is
Áfangaframboð vor 2013.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. janúar. Teaching will start on monday January 7th.
Bókalisti er aðgengilegur í Innu. The booklist is accesible in Inna.
23.12.2012
Skrifstofa skólans verður opin frá 10:00 - 14:00 fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. desember.
Skrifstofan verður síðan opnuð aftur fimmtudaginn 3. janúar 2013 kl. 8:30.
Gleðilega hátíð!
21.12.2012
Í dag verða brautskráðir 78 nýstúdentar í athöfn sem hefst kl. 14:00 og lýkur um kl. 16:00.
Til hamingju með daginn stúdentar!
13.12.2012
Helstu tímasetningar frá prófalokum til útskriftar
17. des, mánudagur kl. 18:00
Einkunnabirting í Innu bæði fyrir dag og öld. Opnað fyrir staðfestingu vals hjá dagskóla.
18. des, þriðjudagur:
Viðtalstími valkennara kl. 10 – 11.
Prófasýning dag og öld kl. 11:15-12:15.
Staðfestingu vals lýkur kl. 14:00.
ALLIR NEMENDUR VERÐA AÐ STAÐFESTA VALIÐ SITT
Öllum nemendum skólans er skylt að staðfesta val sitt fyrir næstu önn ætli þeir sér að stunda nám í skólanum
þá. Þeir sem ekki staðfesta val og /eða greiða ekki skólagjöld eiga ekki vísa skólavist á vorönn 2013. Þegar búið
er að birta einkunnir í Innu 17. des., hafa nemendur tíma fram til kl. 14:00 þann 18. des. til að staðfesta valið. Ef nemendur þurfa aðstoð við
að breyta valinu gera þeir það með valkennara milli klukkan 10 og 11 þann 18. des.
Listi yfir áfanga í boði vorið 2013
BREYTINGAR Á VALI
Ef gera þarf breytingar á vali eru forsendur fyrir breytingum eftirfarandi:
Fall í áfanga.
Áfangi fellur út vegna þess að hann er ekki lengur í boði. Varaval var sett inn í stað áfanga sem féllu niður, vegna
ónógrar þátttöku.
Ný hraðferðarheimild.
Nemandi fær ekki hraðferðarheimild í grein þar sem hann hefur gert ráð fyrir hraðferð, fær t.d. einkunn 7 í ÍSL103 en hefur
valið ÍSL2034. Þá skal hann breyta vali.
Synjun P-umsóknar
Nemandi óskar að fækka tímum í töflu með því að taka burt áfanga án þess að annar komi í staðinn.
Áfangar sem féllu út:
BRI1012, BÓKF2AI05, ESPE1AG05, FÉL2336,FÉL3136, FÉL3236, ÍSL3F36, ÍSLE2LH05, LAT2036, LEI2Í36, LEI3F36, LÍF3136, SAGA2NÝ05,
SAG2Þ36, SAG3E36, SÁLF2BK05, STÆR2AH05, STÆR2BH05, STÆR3AX05, ÞJÓ2636, ÞJÓÐ2BF05
Athuga þarf sérstaklega hvort varavalsáfangar séu orðnir of fáir.
03.12.2012
Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um
sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn.
07.11.2012
Nemendur MH gefa blóð eða fá aðra til að gefa blóð í sinn stað sbr. frétt á mbl.is ,,Hef heyrt orðið fáranlegt oft í dag"
01.11.2012
Stöðupróf verða á tímabilinu 28. nóv. til 8. desember. Nánari upplýsingar um próf og tíma má nálgast hér eða með því að smella á Stöðupróf í listanum á stikunni hér til
vinstri.