20.03.2020
Á morgun 21. mars,er Forritunarkeppni framhaldsskólanna, en hún verður núna haldin sem fjar-keppni vegna samkomubannsins, þ.e.a.s þátttakendur skrá sig inn í keppnisumhverfið heiman frá sér. MH er með eitt lið sem tekur þátt, The Bools heitir það. Þetta fyrirkomulag keppninnar mun reyna mikið á fjar-samvinnu keppenda, en vonandi hefur þátttaka í fjarkennslunni síðustu daga verið góð æfing. Þar sem allir liðsmenn eru að vinna heiman frá sér þá þurfa liðsmenn að spjalla saman í gegnum samskiptaforrit ásamt því að hafa aðgang að skjá eins liðsmanns til að geta forritað lausnina saman. Lausnin er síðan send inn á sérstakan skilavef keppninnar (Kattis) sem fer sjálfvirkt yfir lausnina og gefur liðinu stig. Öll liðin sjá stigatöflu í rauntíma og geta því fylgst með gengi síns liðs.
Lokaathöfn verður streymt út á netið og byrjar klukkan 16:15. Lokaathöfnin byrjar stuttu eftir að keppni lýkur, eða klukkan 16:15, og verður hægt að fylgjast með henni á netinu hér: https://livestream.com/ru/ff2020
Áfram The Bools !!!
19.03.2020
Margir kennarar eru að nota fjarfundi í Teams til að hitta nemendur. Allir nemendur MH hafa aðgang að Teams og er hægt að finna leiðbeiningar í Innu eða hér á heimasíðunni. Allir þurfa að skrá sig inn með kennitölunni sinni og leyniorðið er það sama og þið notið til að fara inn á tölvurnar í MH. Ef þi hafið ekki leyniorðið þá hafið þið samband við netstjóra MH með tölvupósti í netfangið netstjori@mh.is
18.03.2020
Flest vitum við að svefn skiptir miklu máli. Alþjóðlegi svefndagurinn var föstudaginn 13.mars og í tilefni af því sendi verkefnastjóri heilsueflandi framahaldsskóla út ráðleggingar sem stuðla að betri svefni og töflu sem segir til um æskilegan svefntíma fyrir hvert aldurskeið. Um þetta er einnig fjallað í frétt á vef embættisins. Við minnum á að góður svefn er nauðsynlegur fyrir alla til að geta tekist á við verkefni dagsins. Á þessum tímum er einnig vert að taka fram að góður svefn hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið.
18.03.2020
Kennslustundir eru öðruvísi þessa dagana í MH. Nemendur mæta við tölvuna heima hjá sér og sinna náminu þar og margir kennarar velja að mæta í kennslustofuna sína og sinna kennslunni þaðan. Námsráðgjafar eru til taks fyrir nemendur sem þurfa aðstoð við námið og sendu póst í dag á nemendur. Við reynum að halda utanum alla pósta sem fara út frá öðrum en kennurum og munu þeir sjást á heimasíðunni undir COVID-19 hnappnum. Gangi ykkur sem best og ekki hika við að hafa samband við skólann/kennara ef spurningar vakna.
16.03.2020
Nám nemenda fer fram í gengum Innu (Inna er þessa stundina að kvarta yfir álagi og erfitt er að komast inn en það mun leysast). Kennarar eru að vinna í því að setja upp skipulag fyrir kennsluna og munu setja allar upplýsingar inn á Innu. Nemendur þurfa að bíða þolinmóðir eftir því og viljum við biðja nemendur um spara það fyrst um sinn að senda tölvupósta á kennara, svo kennarar drukkni ekki í póstum. Skilaboðin til ykkar munu koma í gegnum Innu. Núna þurfa allir að fylgist vel með á Innu, mæta í tíma skv. stundaskrá og tímaskipulagi sem kennarinn hefur gefið (eða mun gefa) og umfram allt að taka lífinu með ró.
___________________________________
Students - please be patient and the teacher will contact you through Inna.
14.03.2020
Ef einhver þarf að nálgast gögn í skápnum sínum þá er hægt að koma upp í skóla, hringja í númer sem er á hurðinni og þá mun einhver koma og aðstoða.
13.03.2020
Eins og flestir vita er búið að setja á samkomubann frá og með mánudeginum 16. mars. Skólinn er því lokaður fyrir nemendum og skólahald með óhefðbundnum hætti. Námið fer fram í gegnum Innu og eiga nemendur að vera tilbúnir skv. sinni stundaskrá eins og kom fram í pósti frá rektor. Ef það eru einhverjar spurningar þá þarf bara að senda okkur tölvupóst. Gangi ykkur sem best.
12.03.2020
Okkur veitir ekki af að segja frá góðum fréttum líka. Allir nemendur / kennarar í MH sem voru í umræddum tíma föstudaginn 6. mars og voru sendir heim í sóttkví og fóru í stroku fyrir Covid-19, hafa komið út í lagi. Við vildum bara deila því með ykkur.
11.03.2020
Allir nemendum fengu bréf frá Almannavörnum og setjum við það hér inn fyrir þá sem ekki eru á póstlista. Til að lesa bréfið þarf að smella á fréttina.