Fréttir

Lagningardagar

Lagningadagar hefjast á miðvikudag og standa til föstudags. Þá liggur hefðbundin kennsla niðri en NFMH skipuleggur námskeið, fyrirlestra og aðra viðburði í samráði við kennara og stjórnendur. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku kennara og nemenda í dagskrá Lagningardaga. Nánari upplýsingareru hér um dagskrá Lagningardaga 2020. Nemendur mæta fyrir utan þá stofu sem auglýstur viðburður á að vera í og mynda þar röð þar sem oftast er takmarkaður sætafjöldi á viðburði.

Skólahald fellur niður 14. febrúar / All classes cancelled on the 14th of February

Í ljósi rauðrar veðurviðvörunar og ofsaveðurs sem er spáð á morgun mun skólahald falla niður og skólinn verður lokaður. Almannavarnir beina þeim tilmælum til fólks að það haldi sig heima. Við sjáumst svo á mánudag um leið og við óskum öllum góðrar helgar. Due to red weather warning from the Icelandic Met Office all classes will be cancelled tomorrow, 14th of February, and the school will be closed. We will see you all on Monday and have a good and safe weekend.

Þýskir kvikmyndadagar

Þýskir kvikmyndadagar hefjast í Bíó Paradís föstudaginn 14.febrúar og standa til 23. febrúar. Eins og undanfarin ár er nemendum boðið upp á ókeypis nemandasýningu ásamt poppi og coke. Sýningin verður þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20 í Bíó Paradís og varð myndin BALLON fyrir vali. Sú mynd er heldur betur við hæfi þar sem við fögnum 30 ára sameiningu þýskalands og falls múrsins á þessu ári. Þýskukennarar MH hvetja alla til að mæta.

Verðlaunahafi í Crossfit á Reykjavíkurleikunum

Erla Guðmundsdóttir líkamsræktarkennari í MH sýndi fjölbreytta hæfileika í Crossfitkeppni Reykjavíkurleikanna þegar hún lenti í öðru sæti í sínum aldursflokki. Keppnin var jafnframt Íslandsmót í Crossfit og árangurinn því glæsilegur. Við óskum Erlu innilega til hamingju með árangurinn en það er óhætt að fullyrða að hún er góð fyrirmynd.

Japanska í MH

Japanska er eitt af 10 erlendu tungumálunum sem kennd eru í MH þessa vorönn. Í dag heimsóttu nokkrir nemendur í japönsku skrifstofuna og kynntu hugmyndir sínar um ferðaáfanga í japönsku. Kynningin var fín og féll vel í kramið hjá stjórnendum sem leggjast nú undir feld að kanna málið.

Stelpur diffra

"Stelpur diffra" er heiti á lokaverkefni sem Nanna Kristjánsdóttir nemandi í MH kynnti á kennarafundi í vikunni. Af því tilefni afhenti Nanna rektori mynd sem hún vann sem svar við annarri mynd þar sem Nanna gerir leiðréttingu á stærðfræðingatali sem skólinn á. Leiðréttingin sýnir konur sem lagt hafa ýmislegt að mörkum til stærðfræðinnar í gegnum aldirnar. Takk Nanna fyrir að leiðrétta þetta.

MH heimsækir Sæmundarskóla

Stjórn NFMH ásamt fulltrúum náms-og starfsráðgjafa og stjórnenda voru mætt í Sæmundarskóla í gær að kynna skólann fyrir nýnemum haustsins 2020. Margir komu og voru forvitnir um skólann. Næsta kynning verður 11. febrúar í Tækniskólanum í Hafnarfirði og þá gefst fleirum kostur á að koma og kynna sér skólann.

MH-ingar í forkeppni fyrir ólympíukeppni í líffræði

Forkeppnin í líffræðinni fór fram í janúar og tóku rúmlega 130 nemendur framhaldsskólanna þátt. Níu nemendur MH tóku þátt að þessu sinni og átti skólinn tvo nemendur í efstu 25 sætunum sem komast áfram í úrslitakeppnina. María Guðjónsdóttir varð í þriðja sæti og Magnús Alexander Sercombe varð í 8.-11. sæti. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Framhaldsskólakynningar

Fyrsta hverfakynning framhaldsskólanna var haldin í gær í Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Næsta kynning verður 30. janúar í Sæmdundarskóla. Á kynningarnar mæta fyrir hönd MH fulltrúar stjórnenda, námsráðgjafa og nemenda. 4.mars verður svo opið hús í MH fyrir grunnskólanemendur og aðstandendur þeirra.

Síðasti dagur til að segja sig úr áfanga er 17. janúar

Til og með 17. janúar er hægt að segja sig úr áfanga án þess að fá fall. Það er gert með því að koma við hjá námsráðgjafa, námstjórum eða á skrifstofunni. Eftir það er ekki hægt að segja sig úr áfanga og verða nemendur að vera í þeim áföngum sem þeir eru með í töflunni sinni. Eftir 5 vikur af kennslu er mæting nemenda skoðuð skv. nýjum reglum um lágmarksmætingu í áfanga. Ef raunmæting er undir 60% þá er nemandi skráður hættur í áfanganum.