Fréttir

Microsoft Teams

Margir kennarar eru að nota fjarfundi í Teams til að hitta nemendur. Allir nemendur MH hafa aðgang að Teams og er hægt að finna leiðbeiningar í Innu eða hér á heimasíðunni. Allir þurfa að skrá sig inn með kennitölunni sinni og leyniorðið er það sama og þið notið til að fara inn á tölvurnar í MH. Ef þi hafið ekki leyniorðið þá hafið þið samband við netstjóra MH með tölvupósti í netfangið netstjori@mh.is

Svefn skiptir miklu máli

Flest vitum við að svefn skiptir miklu máli. Alþjóðlegi svefndagurinn var föstudaginn 13.mars og í tilefni af því sendi verkefnastjóri heilsueflandi framahaldsskóla út ráðleggingar sem stuðla að betri svefni og töflu sem segir til um æskilegan svefntíma fyrir hvert aldurskeið. Um þetta er einnig fjallað í frétt á vef embættisins. Við minnum á að góður svefn er nauðsynlegur fyrir alla til að geta tekist á við verkefni dagsins. Á þessum tímum er einnig vert að taka fram að góður svefn hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið.

Kennslustund í MH

Kennslustundir eru öðruvísi þessa dagana í MH. Nemendur mæta við tölvuna heima hjá sér og sinna náminu þar og margir kennarar velja að mæta í kennslustofuna sína og sinna kennslunni þaðan. Námsráðgjafar eru til taks fyrir nemendur sem þurfa aðstoð við námið og sendu póst í dag á nemendur. Við reynum að halda utanum alla pósta sem fara út frá öðrum en kennurum og munu þeir sjást á heimasíðunni undir COVID-19 hnappnum. Gangi ykkur sem best og ekki hika við að hafa samband við skólann/kennara ef spurningar vakna.

Fyrsti dagur í samkomubanni

Nám nemenda fer fram í gengum Innu (Inna er þessa stundina að kvarta yfir álagi og erfitt er að komast inn en það mun leysast). Kennarar eru að vinna í því að setja upp skipulag fyrir kennsluna og munu setja allar upplýsingar inn á Innu. Nemendur þurfa að bíða þolinmóðir eftir því og viljum við biðja nemendur um spara það fyrst um sinn að senda tölvupósta á kennara, svo kennarar drukkni ekki í póstum. Skilaboðin til ykkar munu koma í gegnum Innu. Núna þurfa allir að fylgist vel með á Innu, mæta í tíma skv. stundaskrá og tímaskipulagi sem kennarinn hefur gefið (eða mun gefa) og umfram allt að taka lífinu með ró. ___________________________________ Students - please be patient and the teacher will contact you through Inna.

Ef nemendur þurfa að sækja námsbækur

Ef einhver þarf að nálgast gögn í skápnum sínum þá er hægt að koma upp í skóla, hringja í númer sem er á hurðinni og þá mun einhver koma og aðstoða.

Samkomubann og lokun skólans

Eins og flestir vita er búið að setja á samkomubann frá og með mánudeginum 16. mars. Skólinn er því lokaður fyrir nemendum og skólahald með óhefðbundnum hætti. Námið fer fram í gegnum Innu og eiga nemendur að vera tilbúnir skv. sinni stundaskrá eins og kom fram í pósti frá rektor. Ef það eru einhverjar spurningar þá þarf bara að senda okkur tölvupóst. Gangi ykkur sem best.

Góðar fréttir - uppfært 13. mars

Okkur veitir ekki af að segja frá góðum fréttum líka. Allir nemendur / kennarar í MH sem voru í umræddum tíma föstudaginn 6. mars og voru sendir heim í sóttkví og fóru í stroku fyrir Covid-19, hafa komið út í lagi. Við vildum bara deila því með ykkur.

Bréf frá Almannavörnum

Allir nemendum fengu bréf frá Almannavörnum og setjum við það hér inn fyrir þá sem ekki eru á póstlista. Til að lesa bréfið þarf að smella á fréttina.

Steinn rektor gestur á rúv

Veikindatilkynningar í Innu

Árstíðabundin flensa er að ganga og kvefpestar, auk COVID19 veirunnar. Við viljum hvetja nemendur til að vera heima ef þeir eru veikir og hafa samband við heilsugæsluna sína ef þeir finna flensueinkennin sem lýst er á vef Landlæknis. Veikindatilkynningar fara fram í gegnum Innu bæði fyrir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára og fyrir nemendur sem eru orðnir 18 ára. Við hvetjum ykkur til að hugsa fyrst og fremst um heilsuna og ekki koma veik í skólann, hver svo sem veikindin eru. Við munum færa inn veikindi smá saman eftir því sem okkur tekst að komast í verkefnið og enginn þarf að hafa áhyggjur af því að veikindi þessa daga verði ekki skrá, ef þið hafið skráð þau í INNU.