08.11.2018
Leikhússport keppnin Leiktu betur fór fram í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Það er ánægjulegt að segja frá því að MH-ingarnir María Kristín Árnadóttir, Diljá Nanna Guðmundsdóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir og Inga Steinunn Henningsdóttir lentu í 3. sæti í spunakeppni framhaldsskólanna. Til gamans má geta þess að þjálfari sigurliðs MA er MH-ingurinn Hákon Jóhannesson. Til hamingju með okkar flotta fólk.
05.11.2018
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna fór fram 10 október síðastliðinn. Okkar nemendur stóðu sig með ágætum og eigum við alls 5 fulltrúa af þeim 46 sem boðið er til þátttöku í lokakeppninni sem fram fer í mars á næsta ári; 2 á neðra stigi og 3 á efra stigi. Það er sérlega ánægjulegt að segja frá því að Tómas Ingi Hrólfsson og Emil Fjóluson Thoroddsen urðu í 1.-3. og 7. sæti á efra stigi. Einnig hlutu Bragi Þorvaldsson, Flosi Tómas Lyons og Heimir Páll Ragnarsson viðurkenningar fyrir góðan árangur. Við óskum þeim öllum til hamingju og góðs gengis í mars.
26.10.2018
Dagana 7. til 21. október tóku MH-ingarnir Margrét Helga Snorradóttir og Sesselja Friðriksdóttir þátt í „Chinese Bridge“ sem er alþjóðleg keppni í kínversku fyrir framhaldsskólanemendur víðsvegar úr heiminum og fór fram í Kína. Að þessu sinni tóku 216 nemendur þátt frá 99 löndum en 6000 nemendur tóku þátt í undankeppninni. Þær Margrét Helga og Sesselja stóðu sig mjög vel og fengu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur og fá þær skólastyrk til að stunda nám í Kína í eina önn. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.
26.10.2018
Októberlotan tókst vel og nemendur og kennarar tókust á við ýmis verkefni. Sumir hópar fóru út úr húsi og sýndu snilli sína í ratvísi. Núna erum við komin til baka eftir kærkomið haustfrí sem vonandi nýttist vel til að hlaða battaríin fyrir síðustu kennsluvikurnar.
17.10.2018
MH-ingurinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hljóp til sigurs í 200m hlaupi á Ólympíuleikum ungmenna. Hún setti jafnframt glæsilegt Íslandsmet og hljóp eins og vindurinn á 23,47 sek. Við óskum Guðbjörgu Jónu innilega til hamingju með árangurinn en titillinn er sá fyrsti sem Ísland vinnur á Ólympípuleikum ungmenna frá því þeir hófu göngu sína.
15.10.2018
Stundataflan þessa vikuna er með öðru sniði en vanalega.
12.10.2018
Í næstu viku - þegar stundataflan verður brotin upp, munum við ekki bera fram hafragraut eins og við erum vön. Við bendum því öllum á að muna eftir að borða hollan og góðan mat áður en komið er í skólann.
11.10.2018
Í vikunni frá mánudeginum 15. okt. til fimmtudags 18. okt. brjótum við upp hefðbundið skólastarf. Nemendur og kennarar mæta einu sinni í hvern áfanga þessa viku og þá í lengdan langan tíma.
Tvöfaldir tímar lengjast. Morguntímar teygjast til hádegis (8:30-12:00) og síðdegistímar frá hádegi til rúmlega fjögur (12:45-16:15) og mæta nemendur og kennarar í þá stofu sem skráð er í stundatöflu í langa tímanum. Athugið að langi tíminn sem er venjulega á föstudagsmorgni verður á mánudagsmorgninum 15. okt.
Viðvera í lengdum tvöföldum tíma gildir fyrir alla tíma vikunnar.
07.10.2018
Valvika er í gangi og stendur til 14. október. Nemendur velja áfanga fyrir næstu önn og það er úr mörgu að velja