28.06.2019
Frá og með 1. júlí verður ekki hægt skrá sig inn með lykilorði í Innu. Innskráning fer núna eingöngu fram með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þetta er til að auka öryggi við innskráningu.
From now on students can not use their kennitala to log into Inna, you have to use íslykill or your phone.
24.06.2019
Dagana 7.-9. ágúst er skrifstofa skólans opin 9.00-15:00. Frá og með 12. ágúst verður hefðbundinn opnunartími, þ.e. frá 8:30-15:30.
20.06.2019
Við viljum bjóða nýja nemendur velkomna í skólann. Skólasetning fyrir ykkur verður mánudaginn 19. ágúst kl. 13:00 og nánari upplýsingar hafa borist ykkur með netpósti. Sjáumst í haust.
07.06.2019
Fulltrúar 10 ára útaskriftarárgangs frá MH komu í dag færandi hendi og gáfu skólanum peningagjöf í formi styrkjar í Beneventum sjóð skólans.
03.06.2019
Á föstudaginn var síðasti dagur fyrir "eldri" nemendur að sækja um skólavist í MH. Innritun er í fullum gangi og gaman að sjá hversu flottur hópur eldri nemenda sækir um. Á föstudaginn er síðasti dagur fyrir nemendur, sem eru að ljúka 10. bekk í vor, að sækja um skólavist fyrir haustið. Við bíðum spennt eftir að skoða umsóknirnar.
25.05.2019
Brautskráðir voru 126 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af sjö námsbrautum, þ.a. tveir stúdentar sem luku námi af tveimur brautum. Að þessu sinni útskrifuðust flestir af opinni braut eða 43 nemendur, 34 af náttúrufræðibraut, 19 af IB-braut, 14 af málabraut, 10 af félagsfræðabraut, 4 af listdansbraut og 2 með framhaldsskólapróf.
Átta nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Guðrún Sunna Jónsdóttir nemandi á náttúrufræðibraut með framúrskarandi árangur, þ.e. 9,83 en hún lauk 243 einingum. Guðrún Sunna hlaut auk þess viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í jarðfræði, líffræði og spænsku. Semidúx var Eyja Camille P Bonthonneau sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með 9,49 í meðaleinkunn en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í stærðfæði frá Stærðfræðifélagi Íslands.
Ávarp fyrir hönd nýstúdenta fluttu Laufey Ósk og Guðni Thorlacius. Auk þess fluttu ávörp Bolli Héðinsson fulltrúi 45 ára stúdenta og fulltrúar 40 ára stúdenta, þeir Runólfur Pálsson og Hallgrímur Helgason, sem færðu skólanum að gjöf mynd gerða af Hallgrími sjálfum. Brynhildur Björnsdóttir formaður Nemenda- og hollvinasamtaka MH flutti ávarp og minnti á mikilvægi samtakanna.
Í kveðju rektors, Steins Jóhannssonar, til nýstúdenta hvatti hann þá m.a. til að hugsa ætíð jákvætt og einbeita sér að núinu. Að vera óhrædd við að fara inn á nýjar brautir og marka sér sérstöðu, m.ö.o. vera frumkvöðlar og vera viðbúin að þurfa stundum fleiri en eina tilraun til að láta hlutina ganga upp. Kór skólans var í stóru hlutverki undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar og flutti nokkur verk auk þess sem aðrir nemendur og nýstúdentar fluttu tónlist.
28.05.2016
Útskrift stúdenta verður laugardaginn 25. maí. Athöfnin fer fram á Miklagarði hátíðarsal skólans og hefst kl. 13:00. Graduation ceremony will be held on Saturday May 25th. The ceremony takes place in Mikligarður the school auditorium starting at 1 pm.
20.05.2019
Þriðjudaginn 21. maí er staðfestingardagur. Einkunnir hafa verið birtar í Innu.
Dagskrá staðfestingardags er eftirfarandi: Viðtalstímar valkennara verða frá 10:00 - 11:00. Prófasýning verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin því eftir þennan tíma fara prófin í geymslu. Staðfestingu og nauðsynlegri lagfæringu á vali þarf að vera lokið kl. 14:00 og P-umsóknir þarf að gera á heimsíðu skólans fyrir kl. 14:00.
Áfangar sem vitað er að verða ekki kenndir haust 2019 eru: ÍTAL2DD05, HEIM3BS05, LIST3CF05, ÍSLE3CÖ05, LEIK3CE05.
19.05.2019
Það er gaman að geta útvíkkað námið út fyrir landssteinana og notið vorsins í París. Nemendur í Parísaráfanga eru þar þessa dagana að kynnast menningu og listum og nota til þess tungumálið sem þau hafa verið að læra. Góða skemmtun.
17.05.2019
Við fengum skemmilega heimsókn í dag frá útskriftarhópi ársins 2009. Takk fyrir að hugsa til okkar og takk fyrir að kíkja í heimsókn. Mikið var gaman að sjá ykkur og upplifa hvað ykkur þykir vænt um skólann ykkar.