Fréttir

Vali fyrir vorönn lýkur í dag mánudaginn 13. október

Vali fyrir vorönn 2015 lýkur í dag mánudaginn 13. október. Þeir sem ekki eru búnir að velja verða að gera það strax í dag!

Val fyrir vorönn 2015. Course selection spring 2015

Nú er komið að vali áfanga fyrir vorið 2015 Valið hefst í dag þann 6. október og á að vera lokið þann 10. október. Leiðbeiningar um framgang valsins og áfangaframboð hefur nú þegar verið sett á heimasíðu MH. It is high time to select courses for the spring term 2015 Starting today October 6th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Wednesday October 10th. Instructionsand áfangaframboð /available courses for the next term are now to be seen on our homepage.

Aðalfundur foreldraráðs MH verður 2. október kl. 20:00 - 21:30

Aðalfundur foreldraráðsins verður fimmtudaginn 2. október í stofu 11 kl. 20-21:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og kosning stjórnar. Fræðsluerindi er frá Páli Ólafssyni félagsráðgjafa og sérfræðingi hjá Barnaverndarstofu, sem fjallar um samskipti foreldra og ungmenna. Allir foreldrar nemenda í MH er velkomnir.

Gullverðlaun í Hjólum í skólann

Hjólum í skólann árið 2014 stóð frá 12. – 16. september. Alls tóku 19 framhaldsskólar þátt í ár, en það er tveimur fleiri skólum en árið 2013. Þátttakendur voru alls 1.236 og hjólaðir voru 12.528 km eða 9,36 hringir í kringum Ísland. Menntaskólinn við Hamrahlíð vann gullverðlaun í flokki skóla með yfir  1000 nemendur og starfsmenn. Vel gert MH-ingar!

Tökum öll höndum saman og flokkum rusl!

STÖÐUPRÓF/PLACEMENT TESTS 17. SEPT. 2014

Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 17. september kl. 16:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftirtöldum tungumálum: Stöðupróf í albönsku, filipísku (tagalog), finnsku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, lettnesku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, svahílí  og víetnömsku. Tengill í (link to) rafræna skráningu í stöðupróf - online registration Placement tests (for Secondary School credit) in the following languages will be held on September 17th at 4 pm. Placement tests in Albanian, Chinese, Croatian, Dutch,  Filipino (tagalog), Finnish, Japanese, Latvian, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Swahili  and Vietnamese .

Vel heppnuð nýnemaferð

Síðastliðinn föstudag lögðu um 200 nýnemar Menntaskólans við Hamrahlíð upp í ferð á Stokkseyri. Áður en farið var af höfuðborgarsvæðinu gróðursettu nýnemarnir birkiplöntur í landnemareit MH í Heiðmörk. Dagskráin á Stokkseyri var í höndum nemendastjórnar MH og var það mál manna að hún hefði skilað góðu verki. Með í för voru einnig fjórir kennarar þau Stefán Á. Guðmundsson, Halldóra Björt Ewen, Guðmundur Arnlaugsson og Harpa Hafsteinsdóttir.  Ferðin tókst vel og nemendur skólans voru sjálfum sér og skólanum til sóma.

Loka dagur til þess að tilkynna útskrift

Allir sem hyggjast útskrifast í desember 2014 verða að koma á skirfstofu áfangastjóra eða konrektors og tilkynna útskrift. Þetta þarf að gera fyrir dagslok 10. september.

Nýnemaferð/Freshman trip 29. - 30. ágúst

Þann 29. ágúst verður farið í hina árlegu nýnemaferð. Lagt verður af stað frá MH stundvíslega kl 16:00. Gist verður í eina nótt og ætluð heimkoma er klukkan 15:00 laugardaginn 30. ágúst. The annual freshman trip will be on the 29th of august. Departure will be from MH precisely at 4 PM. We will stay over one night and head back around noon the next day. Planned arrival is at 3 PM. Leyfisbréfi forráðamanna vegna nýnemaferðar þurfa nýnemar að skila undirrituðu til nemendastjórnar í síðasta lagi fimmtudaginn 28. ágúst. Forráðamenn utan Höfuðborgarsvæðisins geta sent undirritað bréf á netfangið forseti@nfmh.is.  Students are required to hand in a signed  permission slip from a parent or guardian  no later than noon on Thursday August 28th. The signed slip can also be sent to forseti@nfmh.is.

Fyrsti kennsludagur föstudagurinn 22. ágúst/First day of school August 22nd

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá að lokinni skólasetningu kl. 8:30 þann 22. ágúst. Teaching will start after a short commencement ceremony at 8:30 on August 22nd.