22.04.2014
Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24.apríl, halda kórarnir í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur upp á sumarkomu með skemmtun í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Kórfélagar vilja hressa
fólk með góðri blöndu af vorvítamíni eftir kennaraverkfall og heldur rysjótta tíð.
Kórfélagar, sem eru 118 talsins nú í lok vorannar, halda tvenna tónleika. Þeir fyrri hefjast kl.14.00 og hinir seinni um
kl.16.00. Á milli tónleikanna og á eftir verða seldar kaffiveitingar en ágóði af sölu veitinga renna í ferðasjóð
Hamrahlíðarkóranna. Þá verða ýmis skemmtiatriði og uppákomur m.a. hljóðfæraleikur og hljóðfærastofa, bangsa- og
dúkkuspítali, vísinda- og tilraunastofa, skátahorn, hárgreiðsla og andlitsmálun, ljósmyndastofa og fatamarkaður..
Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir að syngja inn vorið með kórunum í Hamrahlíð.
Efnisskrár tónleikanna eiga að vekja með öllum vorhug og sumargleði....
10.04.2014
Breytt próftafla í vor er aðgengileg hér. Prófað verður viku síðar en áætlað var og
standa prófin frá 9. maí til 20. maí að meðtöldum laugardögunum 10. og 17. maí. Uppröðun prófa er óbreytt að
því undaskildu að vegna ferðar spænskuáfanga hafa próf í spænsku og frönsku verið færð milli daga. Próftaflan
verður fljótlega aðgengileg hverjum nemanda í Innu. Umsóknarfrestur vegna breytinga á próftöflu verður auglýstur síðar.
04.04.2014
Samningar við kennara hafa verið undirritaðir og verkfalli þar með aflýst. Skóli hefst því á venjulegum tíma á
mánudagsmorguninn.
02.04.2014
Mánudag og þriðjudag í dymbilviku, 14. og 15. apríl, verður skólinn opinn frá 10:00. Bókasafn, námsráðgjöf,
námstjóraskrifstofa og skrifstofa verða opin til kl. 14:00. Nemendur geta nýtt sér sameiginleg svæði, tölvur og prentara. Hægt er að
sækja um aðgang að skólastofum milli 10:00 og 14:00. Nú er um að gera að nýta tímann vel!
16.03.2014
Nú liggur fyrir að ekki næst að semja við kennara fyrir boðað verkfall 17. mars. Meðan verkfallið varir fellur niður öll kennsla annarra en
fáeinna stundakennara. Eftir sem áður hafa nemendur aðgang að bókasafni og almennum vinnusvæðum.
15.03.2014
MH er sigurvegari í spurningakeppni íslenskra framhaldsskóla, Gettu betur, en liðið fór með sigur af hólmi í viðureign kvöldsins gegn
Borgarholtsskóla.
Þórgnýr, Leifur Geir og Kristinn Már skiluðu langþráðum hljóðnemanum til MH í kvöld.
Vel gert og til hamingju öll!
14.03.2014
Hringt verður út úr tíma kl. 12 í dag 14. mars til fundar á sal. Rektor fer í stuttlega yfir stöðuna vegna verkfalls sem
gæti hafist á mánudag.
13.03.2014
Í dag, 13. mars er dagur líkamsvirðingar. Líkamsvirðing felst í því að bera virðingu fyrir líkama sínum og annarra.
Það þýðir að við hugsum vel um líkamann okkar og hugsum fallega til hans.
Í ár er þessum skilaboðum sérstaklega beint til ungs fólks. Í dag eru 40% stúlkna í kjörþyngd annað hvort að reyna
að léttast eða telja sig þurfa að léttast. Tölfræðilegt samband ríkir milli líkamsþyngdar og lífsánægju
stúlkna. Önnur hver unglingsstúlka á Íslandi fer í megrun og vaxandi fjöldi ungra drengja. Þegar komið er upp í framhaldsskóla
uppfyllir einn af hverjum tíu nemendum greiningarviðmið fyrir átröskun.
Þetta er ekkert náttúrulögmál. Þetta eru afleiðingar umhverfisskilyrða sem við höfum skapað börnunum okkar. Þeim þarf
að breyta ef við óskum þeim bjartari framtíðar. Verum ánægð með okkur!
12.03.2014
Miðvikudaginn 12. mars verður opið hús í MH frá kl. 17:00-19:00 fyrir grunnskólanema og forráðamenn
þeirra. Í opnu húsi verður námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans kynnt.
Námstjórar, kennarar, stjórnendur og náms- og
starfsráðgjafar munu sitja fyrir svörum um námsframboð og annað sem gestum liggur á hjarta varðandi nám við
skólann.
Náms-og starfsráðgjafar verða með glærusýningu um brautir skólans og ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem huga
á nám hér í M.H.
Nemendur kynna félagslíf nemenda og NFMH
Glæsilegt bókasafn skólans verður opið gestum og einnig gefst tækifæri til þess að kíkja í hinar ýmsu kennslustofur.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur kl. 18:00