Fréttir

Stundatöflur og upphaf annar- Timetables and the beginning of Autumn term

Nú geta þeir nemendur sem greitt hafa skólagjöldin skoðað stundatöflu sína í Innu. Nýir greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga. Students who have paid their tuition fee can now check their timetable on Inna. Nýnemar geta nálgast nánari upplýsingar, m.a. hvernig á að komast inn á Innu, og  leiðbeiningar hér. How to get into Inna, the school information system, instructions here Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst. Breyttar töflur birtast í Innu um helgina eða eftir því sem þær vinnast. Fyrstir koma fyrstir fá! Ef tafla á að vera tilbúin fyrir fyrsta kennsludag þarf breytingabeiðni að berast eigi síðar en kl. 24:00 sunnudaginn 17. ágúst. If necessary apply for changes to your timetable as soon as possible and before midnight on Sunday August 17. Smellið hér til þess að fá eyðublað og sendið það síðan í viðhengi á netfangið tafla@mh.is Click on the line above, fill it out and send it as an attachment to tafla@mh.is Áfangaframboð haust 2014 með upplýsingum um ný númer. Nýnemar eiga að mæta á fund með rektor á hátíðarsal skólans  fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13. New students are required to attend a meeting with the Principal in the school Auditorium at 1 pm on Thursday August 21. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá að lokinni skólasetningu kl. 8:30 þann 22. ágúst. Teaching will start after a short commencement ceremony at 8:30 on August 22nd. Bókalisti er aðgengilegur í Innu. The booklist is accesible in Inna.

Upphaf haustannar 2014 - Beginning of school in August

Aðgangi allra nemenda að Innu var lokað í júní vegna vinnu við stundatöflur. Stundatöflur þeirra nemenda sem greitt hafa skólagjöldin verða aðgengilegar upp úr miðjum ágúst. Nánari upplýsingar verða hér á heimasíðunni þegar nær dregur. Inna has been closed and will open again to those that have paid the school tuition when individual timetables are ready around the middle of August. More information here around the middle of August. Nýnemar eiga að mæta á fund rektors á Miklagarði, hátíðarsal skólans, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13:00 stundvíslega. All new students are required to attend a meeting with the school principal on Thursday, August 21st at 1 pm in the school auditorium. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 22. ágúst. Teaching will start according to timetables on Friday, August 22nd. Hafið það gott í sumar og sjáumst hress í haust! Have a nice summer holiday!

Umsóknarfresti nemenda úr grunnskóla lýkur kl. 24:00 10. júní

Umsóknarfresti nemenda sem ljúka grunnskóla í vor lýkur á miðnætti 10. júní. Sótt er um á Menntagátt http://www.menntagatt.is/.

Umsóknarfresti eldri nemenda lýkur kl. 24:00 31. maí

Umsóknarfresti eldri nemenda þ.e. þeirra sem eru að koma úr öðrum framhaldsskólum lýkur á miðnætti laugardaginn 31. maí. Sótt er um á Menntagátt www.menntagatt.is.

Prófasýning og staðfesting á vali 27. maí

Einkunnir eru aðgengilegar í Innu eftir kl. 12:00  mánudaginn 26. maí. Dagskrá staðfestingardags þriðjudaginn 27. maí: Viðtalstímar valkennara dagskóla verða frá 9:00 - 11:00 Prófasýning dagskóla og öldungadeildar verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin.  Staðfestingu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 11:30. Hér eru nánari leiðbeiningar fyrir staðfestingu vals. Hér er listi yfir áfanga í boði á haustönn og listi yfir áfanga sem falla niður.

Til hamingju með daginn stúdentar!

Í dag voru 177 stúdentar brautskráðir frá skólanum. Til hamingju með daginn stúdentar!

Útskriftaræfing

Útskriftarefni eiga að mæta á útskriftaræfingu laugardaginn 24. maí kl. 18:00 á Miklagarð hátíðarsal skólans. Æfingin tekur um klukkustund. Þau sem alls ekki geta mætt þurfa að láta Pálma áfangastjóra vita fyrir æfingu.

Gott gengi í frönskukeppni framhaldsskólanna og franska sendiráðsins

Hin árlega "Frönskukeppni framhaldsskólanna og franska sendiráðsins" var haldin nú í vor. Þemað var "frönsk tónlist og ég". Nemendur skiluðu inn myndbandi þar sem þau sögðu frá því hvernig frönsk tónlist hefur fléttast inn í líf þeirra. Alls tóku 5 skólar þátt. Verðlaunahafar voru tveir og var annar þeirra MH-ingurinn Sigrún Perla Gísladóttir. Hún hlaut að verðlaunum þátttöku í menningartengdu námskeiði í sumar í París, ferð og uppihald að sjálfsögðu í boði franska ríkisins. Til hamingju Sigrún Perla!

Dimissjón og dimissjónkaffi

Útskriftarefni munu kveðja skólann í dag með skemmtun á sal kl. 13:50. Að skemmtun lokinni býður skólinn útskriftarefnum og kennurum í dimissjónkaffi í Útgarði. Gangi ykkur vel í prófum og próflestri dimitantar!

Breytingar á almanaki annarinnar að afloknu verkfalli

Helstu breytingar á almanaki að afloknu verkfalli eru þessar: Bætt er við kennsludegi þriðjudaginn 22. apríl og kennt eins og um fimmtudag sé að ræða. Bætt er við kennsludögum 2., 5., 6. og 7. maí. Fyrsti prófdagur verður föstudagurinn 9. maí. Gert er ráð fyrir prófum laugardagana 10. og 17. maí. Síðasti prófdagur verður þriðjudaginn 20. maí. Útskrift verður sunnudaginn 25. maí kl. 14:00. Prófasýning og staðfesting á vali verður þriðjudaginn 27. maí. Það mun reyna mikið á nemendur og kennara á næstunni við að ljúka önninni á þeirri hraðferð sem við blasir. Gott skipulag, einbeitni og dugnaður mun ráða mestu um hvernig til tekst. Upplýsingar um breytta próftöflu og fleira þvi tengdu koma síðar.