13.02.2014
Í gærkvöldi, miðvikudaginn 11. febrúar, var áhugavert viðtal við Ásdísi þórólfsdóttur
spænskukennara og Sigurkarl Stefánsson líffræðikennara MH í Íslandi í dag. Gefin er góð innsýn í starf kennarans.
Upplýsandi og skemmtilegt viðtal sérstaklega nú á þessum umbrotatímum. Hér er hægt að nálgast viðtalið.
12.02.2014
Snilldarlausnir Marel hófust síðastliðin föstudag og er kynningarmyndband keppninnar komið í loftið sjá hér. Hugmyndasamkeppnin gengur út á það að framhaldsskólanemar finna einföldum hlut
aukið virði með nýju notagildi. Þetta árið er flaska hlutur ársins. Notagildið eiga nemendur að taka upp á myndband og senda
í keppnina.
Allar frekari upplýsingar má finna á http://www.snilldarlausnir.is/ eða hjá Stefan Christian Otte
efnafræðikennara.
Skilafrestur er mánudaginn 3.mars. Vegleg verðlaun eru í boði.
07.02.2014
Loksins eru hafnar framkvæmdir hér vestan við húsið þar sem reist verður hjólaskýli fyrir 60 hjól duglegra Hamrahlíðinga.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki síðar í þessum mánuði.
03.02.2014
Óformleg könnun hér á heimasíðunni gefur til kynna að margir hafi dottið í hálkunni undanfarið. Munum því að
það er aldrei of varlega farið þegar veður er svona umhleypingasamt.
24.01.2014
Allir, í dagskóla eða öldungi, sem hyggja á útskrift í vor eru minntir á að tilkynna útskrift sem fyrst til áfangastjóra
eða konrektors. Skráningu til útskriftar lýkur 27. janúar.
23.01.2014
Fræðslufundur undir yfirskriftinni Fikt í framhaldsskólum verður í hátíðarsal MH
kl. 20:00 fimmtudagskvöldið 23. janúar. Fundurinn er haldinn af Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, í samstarfi við Menntaskólann við
Hamrahlíð, Flensborg, SAFT og Foreldrahús. Smellið hér til þess að sjá dagskrá
fundarins. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Foreldrar eru hvattir til þess að mæta.
16.01.2014
Nú er umsóknarfrestur vegna P áfanga á enda og þeir sem hafa fengið P heimild verða að hafa samband við kennara sinn sem allra fyrst. Ef
það er ekki gert getur heimildin fallið niður eftir 22. janúar.
14.01.2014
Femínistafélag nemenda MH sýnir kl. 15:30 í dag myndina Miss Representation.
Í frétt á mbl.is segir m.a.: „Þessi byltingarkennda heimildarmynd fjallar um það hvernig konur eru túlkaðar í
fjölmiðlum. Vakti myndin mikla athygli er hún kom út árið 2011 og fær hún 7,6 stjörnur á kvikmyndavefnum imdb.com.
Samkvæmt Karen Björk Eyþórsdóttur, formanni nemendafélags MH, hefur orðið mikil vitundarvakning þegar kemur að
jafnrétti og feminisma innan framhaldsskólanna á undanförnum misserum. „Til dæmis
hafa 400 manns skráð sig í feministafélagið Emblu á Facebook síðan það var stofnað í haust og er fólk mjög duglegt
við að setja inn á síðuna allskyns efni sem tengist feminisma og jafnrétti,“ segir Karen Björk. Jafnframt er núna unnið að því
að stofna Femínistafélag framhaldsskólanna.“
Frétt mbl.is
04.01.2014
Innritun á vorönn 2014 stendur yfir. Smellið hér til að innrita ykkur.
Innritunardagur verður í MH þriðjudaginn 7. janúar kl. 16.00 - 18.00 og í síma: 595-5224.
Námsráðgjafar og matsnefnd verða á staðnum.
Kennsla hefst skv. stundaskrá miðvikudaginn 8. janúar.
20.12.2013
Eftir daginn í dag 20. desember verður skrifstofa skólans lokuð til föstudagsins 27. desember en þann dag verður opið frá 10:00 - 14:00. Svo er
lokað til föstudagsins 3. janúar þegar skrifstofan verður opnuð á hefðbundnum tíma kl. 8:30.
After today the office closes until Friday the 27th when it is open from 10 to 2 pm. After that it opens next on Friday the 3rd of January when it opens at 8:30 as usual.