Fréttir

Aðgangi að Innu hefur verið lokað

Aðgangi að Innu hefur verið lokað vegna stundatöflugerðar. Opnað verður aftur þegar töflur eru tilbúnar milli jóla og nýárs. Fylgist með á heimasíðu MH þegar nær dregur.

Staðfesting á vali og prófasýning/confirmation of course selection and viewing of test papers

Einkunnir verða aðgengilegar í Innu eftir kl. 16:00  þriðjudaginn 16. desember. Í framhaldi af því er hægt að staðfest val fyrir næstu önn. Hér eru nánari leiðbeiningar fyrir staðfestingu vals,  listi yfir áfanga í boði (available courses) á vorönn og listi  yfir áfanga sem falla niður eða breytast (DANS3DF05 verður DANS3CV05). Dagskrá staðfestingardags miðvikudaginn 17. desember: Viðtalstímar valkennara dagskóla verða frá 9:00 - 11:00 Prófasýning dagskóla og öldungadeildar verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin.  Staðfestingu og nauðsynlegri lagfæringu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 11:30. After 4 o´clock on  Dec. 16th students can access their grades in Inna and confirm their course selection for next term. List of available courses for spring term Timetable on course selection day Wednesday Dec. 17th.: Teachers assisting with course selection will be available from 9:00 - 11:00. Viewing of test papers is possible from 11:15 - 12:15. Students are encouraged to use this opportunity to view the test papers. Confirmation or adjustment of the course selection for spring term has to be finished by 2 o´clock.

Skólagjöld vorannar 2015 - School fees spring 2015

11. desember birtist reikningur vegna skólagjalda fyrir vorönn 2015 í heimabanka nemenda eða forráðamanna. Eindagi á greiðslu skólagjalda er 19. desember. Eftir eindaga leggst á vanskilagjald kr. 1500. Auk þess birtist reikningur vegna nemendafélagsgjalda 4.000 kr. á önn en þau gjöld eru valfrjáls. Að venju má gera ráð fyrir að stundatöflur þeirra sem greitt hafa skólagjöldin verði aðgengilegar einhvern tíma milli jóla og nýárs (fylgjast með á www.mh.is). Minnt er á að einungis eru tveir og hálfur virkur dagur milli hátíðanna og að upplýsingar frá bönkum berast ekki til MH (eða Innu) fyrr en á næsta virka degi eftir greiðslu. An invoice for school fees for spring 2015 has been sent to the students or guardians online bank account. After Dec. 19th a late fee of 1500 kr. will be added. You will also see an invoice for the Students union but that is optional. Students timetables should be ready between Christmas and New Years (information on www.mh.is later). Only those that have payed the school fees will have online access. Please note that there are only two and a half work days over the holidays and the school only receives payments updates on the next work day after bankpayment.

Prófatímabil 1. - 12. des. 2014 - Final exams

Próf hefjast mánudaginn 1. des. og standa til föstudagsins 12. des. Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14:00 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn.    Próftafla Skrifstofa er opin alla virka daga kl. 8:30 - 15:30.Bókasafnið er opið alla virka daga kl. 8 - 18 og laugardagana 29. nóv. og 6. des. kl. 10 – 14. Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri er með viðtalstíma alla prófdaga kl. 10 - 11 í st. 38. Gangi ykkur vel í prófunum! Final exams start on the 1st of Dec. and end on the 12th. Students that fall sick during the finals phone the office (Tf. 5955200) before 2 pm on the exam day at which time they will receive  information regarding makeup exams. Students need to hand in a doctor’s note  at the start of makeup exams.  Exam table The School office is open from 8:30 am - 3:30 pm Monday – Friday. The Library is open Monday – Friday from 8 am - 6 pm and Saturday´s Nov. 29th and Dec. 6th from 10 am - 2 pm. Guðmundur Arnlaugsson is the administrator in charge of exams.  He can be found in room 38 from 10 – 11 on the mornings of test days. Good luck with your exams!

Innritun nýrra nema fyrir vorið 2015

Sameiginlegt innritunartímabil framhaldsskóla fyrir nám á vorönn 2015 er dagana 1.-30. nóvember. Sótt er um á Menntagátt  þar sem finna má leiðbeiningar um innritun. Upplýsingar um námsbrautir MH eru hér.

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu. Nemendur mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef: Tvö próf eru á sama tíma Þrjú próf eru á sama degi Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi. Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir föstudaginn 14. nóvember.

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember mun Halldór Armand Ásgeirsson skáld halda stutt erindi og lesa úr nýrri skáldsögu sinni Drón í stofu 11 kl. 12.15 mánudaginn 17. nóvember. Halldór er gamall MH-ingur, var í Morfísliði MH og var  t.d. valinn Ræðumaður Íslands árið 2006. Hann þjálfaði líka Morfíslið MH í mörg ár.  Allir velkomnir!  

Haustfrí 16. - 20. október

Dagana 16. til 20. október fara nemendur og stafsmenn skólans í haustfrí. Skólinn er lokaður þessa daga. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 21. október kl. 8:30.

Leiðarlok öldungadeildar

Lárus H. Bjarnason rektor skrifar: Nú er komið að leiðarlokum öldungadeildar Menntaskólans við Hamrahlíð.  Ákveðið hefur verið að leggja deildina niður um áramótin 2014 – 2015.  Ástæðurnar eru annars vegar sífellt þverrandi aðsókn og hins vegar nýleg ákvörðun yfirvalda í tengslum við fjárlagagerð næsta árs um að leggja af fjárveitingar til þeirra sem leggja stund á nám til stúdentsprófs og hafa náð 25 ára aldri. Með þessu er rekstrargrundvöllur kvöldnámsins í MH algerlega brostinn og skólanum er nauðugur einn kostur að hætta þeirri starfsemi. Stjórnendum MH þykir miður gangvart núverandi nemendum deildarinnar að þurfa að tilkynna þetta með svo knöppum fyrirvara. Ekki er útilokað að unnt verði að greiða úr málum sumra með því að bjóða þeim setu í einstaka áföngum dagskólans á komandi vorönn.

Vali dagskólanema fyrir vorönn 2015 er lokið.

Nú eiga allir nemendur sem hyggja á áframhaldandi skólavist í dagskóla á vorönn 2015 að hafa lokið vali.