25.02.2013
Okkur er ánægja að tilkynna að sigurvegari í ræðukeppni English Speaking Union á Íslandi þetta árið er Emily Ward, nemandi
við Menntaskólann við Hamrahlíð. Aðrir keppendur úr MH voru Aron Eydal Sigurðsson, Hannah Bryndís Proppé-Bailey og Rebekka Rún Mitra.
Við óskum þeim öllum til hamingju með þennan góða árangur og Emily allra heilla í London.
We are proud to announce that the winner of the 2013 ESU National Public Speaking Competition is our MH student Emily Ward. Congratulations to Aron Eydal Sigurðsson, Hannah Bryndís
Proppé-Bailey and Rebekka Rún Mitra for their hard work, and we wish Emily the best of luck in London.
21.02.2013
Í frétt á vef Ríkisútvarpsins segir:
„Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri Hamrahlíðarkórsins hlaut heiðursverðlaunin á Íslensku
tónlistarverðlaununum í kvöld. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti henni verðlaunin og sagði að með starfi
sínu hefði Þorgerður hleypt birtu og hlýju í líf kórfélaga og þeirra sem á hlýddu.
Þorgerður þakkaði fyrir viðurkenninguna og sagði að sér þætti vænst um að með verðlaununum væri athygli vakin á
listrænu starfi með ungu fólki. Allt þetta unga fólk sem komið hefði að starfinu hafi gefið hug sinn og hjarta í sönginn. Þau eigi
þetta saman. Þá hafi söngurinn sameinað þau í vináttu og gleði sem hafi borist úr Hamrahlíðinni um land allt og víða
um lönd. Kórfélagar taki þetta allt með sér út í lífið.
Þorgerður sagði jafnframt í þakkarræðu sinni að það væri mikil gæfa að hafa í lífsstarfi sínu unnið
með ungu og heilbrigðu fólki. Söngurinn geri menn að vinum, gleðji fólk og lyfti hug í hæðir“ Frétt RÚV
Til hamingju Þorgerður og kórmeðlimir fyrr og síðar!
18.02.2013
Í frétt á heimasíðu Íslandsdeildar Amnesty International segir:
„Í lok síðasta árs efndi Íslandsdeild Amnesty International til samkeppni meðal framhaldsskóla landsins um besta
árangurinn á bréfamaraþoni samtakanna í þágu verndar og virðingar mannréttinda, víðs vegar um heiminn. Sex framhaldsskólar
skráðu sig til leiks og var árangur skólanna glæsilegur, en samtals skrifuðu menntskælingar 7.267 aðgerðakort til ellefu landa, þar sem
mannréttindi eru fótumtroðin. Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð báru sigur úr býtum og
skrifuðu þeir 2.971 aðgerðakort þar sem þrýst var á yfirvöld að gera úrbætur í mannréttindamálum.“Frétt á vef Amnesty Frétt á vef DV
15.02.2013
Í frétt á mbl.is frá í gær segir: „Dagur B. Eggertsson
formaður borgarráðs afhenti Skyttunum þremur styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen fyrrverandi borgarstjóra. Skytturnar þrjár,
eru ungar stúlkur sem berjast fyrir aðgengi fatlaðra og heita Áslaug Ýr Hjartardóttir, systir hennar Snædís Rán Hjartardóttir og Helga
Dögg Heimisdóttir.“
Tvær af skyttunum þremur eru nemendur MH, þær Áslaug Ýr og Snædís Rán.
Til hamingju ungu konur!
09.02.2013
Lagningardagar verða hér í MH 6. – 8. febrúar. Þá fellur niður hefðbundin kennsla og ýmsir skemmtilegir viðburðir verða, s.s.
fyrirlestrar, námskeið og skapandi starf.
Open days with lectures, workshops, music, dance, drawing, drama and more.
Nemendur þurfa að mæta í skólann þessa daga samkvæmt eftirfarandi fyrirkomulagi:
Attendance during Lagningardagar (February 6th, 7th and 8th):
01.02.2013
Hér er tengill í myndina Fáðu já sem fjallar um mörkin milli kynlífs og ofbeldis.
23.01.2013
Á fimmtudags- og föstukvöldið kemur, þann 24. og 25. janúar, taka Hamrahlíðarkórarnir þátt í flutningi
á Chichester Psalms eftir Leonard Bernstein tónskáld, hljómsveitarstjóra, sjónvarpsstjörnu, píanista og kennara.
Við vekjum athygli á því að starfsfólk og nemendur MH fá 50% afslátt á föstudagstónleikana 25. jan.
Chichester Psalms byggja á Davíðssálmum en eru sungnir á hebresku. Þrátt fyrir trúarlegan þunga textans er tónverkið
iðandi af lífi. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður Eivind Aadland og kórunum stjórnar Þorgerður Ingólfsdóttir.
16.01.2013
Tveir af fjórum ungum einleikurum sem stigu á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gærkveldi eru eða voru nemendur MH.
Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari er núverandi nemandi skólans og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari
útskrifaðist frá okkur um jólin. Þær, ásamt Einari Bjarti Egilssyni og Unnsteini Árnasyni voru vinningshafar í keppni ungra einleikara.
Hér er tengill í frétt á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Til hamingju!
10.01.2013
Advania hefur kynnt nýjar reglur sem gilda um lykilorð í Innu. Þær eru þannig að alltaf er útbúið
nýtt tímabundið lykilorð þegar notandi velur að sækja lykilorð. Þetta tímabundna lykilorð hefur 15 mín. gildistíma og þarf notandi að skrá sig inn innan þess tíma og velja sér nýtt lykilorð sem er
a.m.k. 8 stafir á lengd og inniheldur bæði bókstafi og tölustafi. Ef tímabundnu lykilorði er ekki breytt innan gildistíma þarf að sækja
nýtt lykilorð á ný.
Óbreytt er að þegar skipt er um lykilorð í Innu þá verður Námsnetið/Myschool komið með nýja
lykilorðið daginn eftir.
05.01.2013
Kennsla hefst mánudaginn 7. janúar samkvæmt stundaskrá dagskóla og fyrri lotu öldungadeildar/kvöldskóla.